Rafmagnsverkfræði við tækni- og verkfræðideild HR

Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík leitar að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við hóp sérfræðinga á véla- og rafmagnssviði. Við leitum að einstaklingi sem leitt getur þróun framhaldsnámskeiða í rafmagnsverkfræði, auk þess að byggja upp eigin rannsóknir og sinna kennslu í grunn- og framhaldsnámi. Háskólinn í Reykjavík tryggir akademískum starfsmönnum stuðning og aðstöðu til að byggja upp rannsóknarstarfsemi. 

Hæfniskröfur:
• Doktorsgráða í rafmagnsverkfræði af sterk- eða veikstraums sviði.
• Rannsóknareynsla.
• Kennslureynsla.
• Reynsla af hefðbundnum verkfræðistörfum er kostur.

Ráðið verður í stöðu lektors, dósents eða prófessors og verður starfsheitið ákvarðað út frá hæfnismati. Staðan er laus nú þegar. Við bjóðum samkeppnishæf laun og gott starfsumhverfi á vaxandi og skemmtilegum vinnustað.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Gunnar Guðna Tómasson deildarforseta tækni- og verkfræðideildar HR (gunnargt@ru.is). Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 30. apríl, og skulu fela í sér starfsferilskrá, lista yfir birtar rannsóknir, lýsingu á kennslureynslu og upplýsingar um umsagnaraðila.

 

Tækni- og verkfræðideild er ein stærsta háskóladeild landsins með tæplega 1000 nemendur og um 50 fasta akademíska starfsmenn á fjölmörgum sviðum tækni- og verkfræði. Deildin var stofnuð 2005 þegar Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands voru sameinaðir. Kennsla til BSc gráðu í verkfræði hófst haustið 2005 og frá og með haustinu 2009 verður framboð á meistaranámi við deildina stóraukið. Áformað er að bjóða doktorsnám við deildina á næsta ári.

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru fimm: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, Lagadeild, Tölvunarfræðideild, Tækni- og verkfræðideild og Viðskiptadeild. Nemendur eru um 3000, en starfsmenn skólans eru yfir 500 í 270 stöðugildum.

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica