Skrifstofustjóri á skrifstofu viðskiptadeildar

Starfið er fjölbreytt og felur í sér nemendamál, markaðsmál, fjármál, starfsmannamál, samskiptamál, skjalavistun og önnur verkefni tengd daglegum rekstri deildarinnar. Náið samstarf er við forseta deildarinnar, akademíska starfsmenn og aðra stoðþjónustu háskólans. Undir skrifstofustjóra heyra verkefnastjórar og deildarfulltrúar skv. nánari ákvörðun deildarforseta.

Hæfniskröfur eru háskólamenntun, stjórnunarreynsla, skipulagshæfileikar og samskiptaleikni. Reynsla úr starfi í háskólaumhverfi eða skyldri starfsemi er mikill kostur.

Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 20. júní, og skulu innihalda kynningarbréf, starfsferilskrá, mynd og upplýsingar um umsagnaraðila. Nánari upplýsingar veitir Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðamála (asta@ru.is).


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica