Störf á markaðs- og kynningarsviði
  • Grafískur hönnuður / verkefnastjóri
  • Vefstjóri


Háskólinn í Reykjavík leitar að tveimur starfsmönnum í tímabundin störf vegna afleysinga.

  • Grafískur hönnuður / verkefnastjóri: Starfið felst í hönnun kynningarefnis og skipulagningu kynningarstarfs, markaðsverkefna og viðburða.

Leitað er að einstaklingi með menntun og/eða reynslu í grafískri hönnun, sterka samskiptahæfileika og hæfni í verkefnastjórnun og skipulagningu. Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst nk. og er ráðningin í 8 mánuði.

  • Vefstjóri: Starfið felst í ritstjórn, þróunarvinnu og uppfærslu með ytri og innri vefjum skólans, í nánu samstarfi við akademískar deildir og stoðsvið skólans.

Leitað er að einstaklingi með a.m.k. tveggja ára reynslu af vefstjórn, mjög góða íslensku- og enskukunnáttu og skipulögð og skjót vinnubrögð. Færni í vefhönnun er nauðsynleg. Unnið er í vefstjórnarkerfunum Eplica og Wiki og er æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu á þeim kerfum. Ráðið verður í starfið frá 1. september til 10 mánaða.

Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 25. maí, og skulu innihalda kynningarbréf, starfsferilskrá, mynd og upplýsingar um umsagnaraðila.

 

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru fimm: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Nemendur eru um 3000, en starfsmenn skólans eru yfir 500 í 270 stöðugildum. Skólinn býður um 750 námskeið á ári, þar af á þriðja hundrað á meistarastigi.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica