Starfið felst í þjónustu við viðskiptavini, verkefnastjóra og kennara í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík. Meðal verkefna eru stofubókanir, pöntun veitinga, ljósritun og frágangur námsefnis, símsvörun og aðstoð við uppfærslu kynningarefnis. Leitað er að þjónustuglöðum og kraftmiklum einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum við fólk og hefur tileinkað sér mikla fagmennsku í öllum vinnubrögðum. Starfið gerir kröfu um góða tölvukunnáttu, og æskilegt er að umsækjandi hafi stúdentspróf og nokkurra ára reynsla af vinnumarkaði.
Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 20. ágúst, merktar viðkomandi starfi, og skulu innihalda kynningarbréf, starfsferilskrá, mynd og upplýsingar um umsagnaraðila. Nánari upplýsingar um störfin veitir Ásta Bjarnadóttir framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðamála (asta@ru.is).
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru fimm auk Opna háskólans: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, Lagadeild, Tölvunarfræðideild, Tækni- og verkfræðideild og Viðskiptadeild. Nemendur eru um 3000, en starfsmenn skólans eru yfir 500 í 270 stöðugildum. Skólinn býður upp á um 750 námskeið á ári, þar af á þriðja hundrað á meistarastigi. Gildi skólans eru metnaður, snerpa, áræðni og heilindi.

