List í HR
Háskólinn í Reykjavík gerði á árinu 2007 samning við nokkra íslenska myndlistarmenn um þátttöku í gerð tillagna að listaverkum og listrænum útfærslum í nýbyggingu háskólans. Ráðgjafi HR við þessa vinnu er dr. Ólafur Kvaran, listfræðingur, og í samráði við HR voru Brynhildur Þorgeirsdóttir, Finnbogi Pétursson, Halldór Ásgeirsson, Hekla Dögg Jónsdóttir, Katrín Sigurðardóttir, Ólöf Nordal og Þór Vigfússon fengin til að koma með tillögur að listaverkum innan og utan nýbyggingar háskólans.
Það er ekki algengt að listamenn séu teknir inn í verkefni sem þetta svona snemma í hönnunarferlinu og markar því þessi samningur ákveðin tímamót í samvinnu arkitekta og myndlistarmanna á Íslandi. Listamenn fá með þessu meira svigrúm og frjálsræði um hlutverk listrænna þátta í byggingunni. Háskólinn í Reykjavík vildi með þessu leita nýrra leiða í samvinnu arkitekta og myndlistarmanna og með því móti leggja áherslu á virka þátttöku myndlistarmanna í að móta útlit og áherslur byggingarinnar í samvinnu við hönnuði. Oft koma listamenn of seint að svona vinnu, jafnvel ekki fyrr en byggingar hafa risið.
Myndlistarmennirnir hafa skilað inn fjölmörgum hugmyndum og verða margar þeirra nýttar og munu styrkja ásýnd, útlit og notagildi yggingarinnar enn frekar. Sem dæmi um verk má nefna útfærslur á nokkrum hinna sjö innigarða byggingarinnar sem ganga undir nöfnunum Steinagarður, Sólargarður, Japanskur garður, Djúpið, Golfgarður, Vatnsgarður og Höggmyndagarður. Auk þess snúa listaverkin meðal annars að lýsingu innandyra, listaverkum á veggjum byggingarinnar, utanhússklæðningu, listaverkum á lóð háskólans og gosbrunni, svokölluðum Þekkingarbrunni, við inngang háskólans.

