Rektor hefur skipað nýja siðanefnd HR og var skipan nefndarinnar samþykkt í framkvæmdastjórn skólans í október 2011. Í nefndinni sitja:
1. Kristján Kristjánsson, forstöðumaður rannsóknarþjónustu HR, formaður (skipaður af rektor)
2. Sigríður Inga Viggósdóttir, nemi (tilnefnd af Stúdentafélagi HR)
3. Kamilla Rún Jóhannsdóttir, lektor (tilnefnd af viðskiptadeild HR)
4. Haukur Ingi Jónasson, sérfræðingur (tilnefndur af tækni- og verkfræðideild HR)
5. Arnar Þór Jónsson, sérfræðingur (tilnefndur af lagadeild HR)
6. Magnús Már Halldórsson, prófessor (tilnefndur af tölvunarfræðideild HR)
Samkvæmt starfsreglum siðanefndar HR, skal öllum ábendingum til siðanefndar beint til formanns nefndarinnar. Formaður nefndarinnar, Kristján Kristjánsson, er með starfsaðstöðu í Mars, 3. hæð. Síminn hjá honum er 599 6372 / 825 6372 og netfangið kk@ru.is.

