Mannauðsstefna HR

 

Framsækinn vinnustaður

 

Háskólinn í Reykjavík er framsækinn og krefjandi vinnustaður, sem laðar að sér fólk með þann metnað og snerpu sem þarf til að ná árangri.

  • Starfsmenn Háskólans í Reykjavík setja markið hátt, leggja áherslu á gæði, vinna að stöðugum endurbótum og leita frumlegra leiða til að ná afburða árangri.
  • Verkefnin eru ögrandi og áhugaverð, skipuritið skýrt, og ábyrgð og völd fara saman.
  • Skýr viðmið eru fyrir frammistöðu í öllum störfum í HR, en starfsmenn hafa jafnframt mikil tækifæri til að byggja upp og móta sitt verksvið og hafa áhrif innan HR.

 

Ráðningar

 

Háskólinn í Reykjavík mætir þeim kröfum sem starfsemin gerir með því að ráða til starfa hæfasta fólkið á þeim sviðum sem við störfum á.

  • Háskólinn í Reykjavík gerir miklar kröfur til starfsmanna um menntun, árangur og hagnýta reynslu, og fagleg vinnubrögð eru notuð við ráðningar.
  • Við leitum hæfustu starfskrafta án tillits til landamæra og nýtum fagleg tengsl starfsmanna til að finna og laða að hæfa umsækjendur.
  • Matsnefndir fjalla um störf nýrra akademískra starfsmanna, og stöðuheitum er úthlutað að undangengnu faglegu mati.
  • Háskólinn í Reykjavík fylgir evrópskum viðmiðum um ráðningar og starfsumhverfi akademískra starfsmanna og fékk í maí 2010 viðurkenningu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna innleiðingar þeirra viðmiða.

 

Frammistöðumat og laun

  Háskólinn í Reykjavík býður samkeppnishæf laun og markvissa endurgjöf.
  • Launakjör í Háskólanum í Reykjavík eru samkeppnishæf við hinn almenna markað og aðra háskóla, og fyllsta jafnréttis er gætt við ákvörðun launa.
  • Frammistaða er markvisst metin og starfsmannasamtöl og fleiri aðferðir notaðar til að miðla og ræða niðurstöðu frammmistöðumats.
  • Stjórnendur hafa umboð til aðgerða í launamálum, og leitast við að tengja laun og aðra umbun við frammistöðu.

 

Framgangskerfi

 

Framgangskerfi Háskólans í Reykjavík hvetur akademíska starfsmenn til rannsóknarvirkni, framsækinnar kennslu og virks samstarfs við atvinnulífið.

  • Framgangur í starfi er veittur samkvæmt faglegu mati matsnefnda.
  • Stefna Háskólans í Reykjavík er að sem flestir kjarnastarfsmenn í akademískum deildum séu sterkir rannsóknamenn, öflugir kennarar og í góðum tengslum við atvinnulíf og samfélag.
  • Háskólinn hefur í hávegum akademískt frelsi í rannsóknum.

 

Starfsþróun

 

Háskólinn í Reykjavík vill að starf við skólann feli í sér stöðuga áskorun og styrki einstaklinginn faglega og persónulega.

  • Starfsfólk hefur tækifæri til að læra og þroskast í starfi, og fær stuðning til formlegs náms og símenntunar.
  • Símenntun er einstaklingsmiðuð, en skólinn leggur þó sérstaka áherslu á þjálfun akademískra starfsmanna í framsæknum og lifandi kennsluaðferðum.

 

Alþjóðlegur vinnustaður

 

Háskólinn í Reykjavík er alþjóðlegur vinnustaður.

  • Háskólinn í Reykjavík er aðlaðandi vinnustaður jafnt fyrir erlenda sem innlenda starfsmenn, og möguleikar til að starfa við skólann eru ekki bundnir við búsetu á Íslandi.
  • Háskólinn í Reykjavík styður starfsmenn í að rækta alþjóðleg tengsl.
  • Markmið skólans er að auka verulega starfsmannaskipti við erlenda háskóla.

 

Jafnréttisstefna

 

Háskólinn í Reykjavík hefur frammistöðu og hæfni ávallt að leiðarljósi og gætir að jafnrétti í allri stefnumótun og stjórnun.

  • Við ákvörðun um stöðuveitingar, laun eða starfsaðstæður er einstaklingum ekki mismunað vegna kynferðis, aldurs, trúar, þjóðernis, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar, stjórnmálaskoðunar eða annarra ómálefnalegra þátta.
  • Lögð er sérstök áhersla á kynjajafnrétti, og snýr það meðal annars að eftirfarandi atriðum:
    • Jafnréttis er gætt við ákvörðun og stýringu launa og annara kjara í HR, og við skuldbindum okkur til að fylgja viðurkenndum aðferðum við eftirlit þar að lútandi.
    • Við ráðningar og framgang er lögð áhersla á jafnrétti og jöfn tækifæri karla og kvenna og þess er gætt að viðmið, mælikvarðar, orðaval og ákvarðanataka séu kynjum jafn hagstæð. 
    • Markvisst er unnið að því að jafna kynjahlutföll í starfsmannahópum, og sérstakar aðgerðir þar að lútandi teljast ekki brjóta í bága við jafnréttisstefnu HR.
    • Kynferðisleg áreitni er ekki liðin í HR, og þar er vísað til ákvæða í siðareglum skólans.
  • Ofangreind jafnréttisstefna er viljayfirlýsing og verður útfærð nánar með markmiðum og aðgerðum á skólaárinu 2007-2008.

 

Jafnvægi og lífsgæði

 

Háskólinn í Reykjavík er fjölskylduvænn vinnustaður sem styður við heilbrigða lífshætti.

 

• Háskólinn í Reykjavík vill að starfsmenn nýti sér þann sveigjanleika sem háskólaumhverfið býður upp á, og taki sér frí til að endurnýja kraftana. Skólinn metur árangur í starfi fremur en lengd vinnutíma.
• Í Háskólanum í Reykjavík er það litið jákvæðum augum að bæði karlar og konur, almennir starfsmenn jafnt sem stjórnendur, taki fjölskylduábyrgð og jafnvægi milli starfs og einkalífs eru talin mikilvæg lífsgæði.
• Háskólinn í Reykjavík styður starfsmenn í því að ástunda heilbrigða og holla lífshætti.

 

Fyrirmynd í stjórnun og rekstri

  Háskólinn í Reykjavík er til fyrirmyndar í stjórnun og vill vera fyrirmynd framsækinna háskóla.
  • Háskólinn í Reykjavík er einkarekinn háskóli og starfsmenn njóta þess í skilvirkri stjórnun, snerpu og sveigjanleika.
  • Háskólinn í Reykjavík fylgist með viðhorfum starfsmanna til skólans með formlegum hætti með reglulegum könnunum, og leitar leiða til að halda í góða starfsmenn.
  • Við erum eitt samfélag starfsmanna þar sem unnið er þvert á deildir og upplýsingastreymi er virkt.

 

Vinnustaðarmenning og gildi

 

Starfsumhverfið í Háskólanum í Reykjavík einkennist af jákvæðni, frumkvöðlaanda og virðingu fyrir samstarfsmönnum.

  • Háskólinn í Reykjavík vill að starfsmenn hlakki til að koma til starfa á hverjum degi, og vill vera fyrirmyndar vinnustaður þar sem ánægja og árangur fara saman.
  • Gildi Háskólans í Reykjavík eru metnaður, snerpa, áræðni og heilindi, og eru þau stjórnendum og starfsmönnum til leiðsagnar við ákvarðanatöku og samskipti.
  • Í Háskólanum í Reykjavik er lögð áhersla á heilindi og siðareglur skólans eru ríkur þáttur í starfi hans.
  • Stefna HR er að vera fyrsti valkostur þeirra sem vilja starfa við háskóla á Íslandi.

    Stefna HR

 




 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica