Kennslumat HR

Kennslumat er lagt fyrir í öllum námskeiðum í HR á hverju námsmisseri og er notað til að meta gæði íkennslu einstakra námskeiða, skipulag námskeiða og viðhorf nemenda til námskeiða.  Kennslumat felur í sér spurningar þar sem nemendur gefa einkunn á kvarðanum 1-5. Nemendur fá einnig tækifæri til að svara tveimur opnum spurningum, þ.e. um kosti og galla námskeiðsins. Kennslumat er lagt fyrir tvisvar í flestum námskeiðum, á miðri önn og eftir að kennslu lýkur. 

Eftirfylgni við kennslumat í HR

Lokaniðurstaða kennslumats er aðgengileg fyrir kennarann gegnum kennslukerfi HR strax og hann hefur skilað af sér einkunnum í námskeiðinu. Niðurstaða kennslumats á miðri önn er aðgengileg kennurum strax og mælingu lýkur

Niðurstöður kennslumats eru rýndar af forstöðumanni kennslusviðs, kennsluþjálfara, forsetum deilda og sviðsstjórum eða forstöðumönnum námsbrauta.  Markvisst er unnið með fyrra kennslumatið í hverju námskeiði og vinnur kennsluþjálfari HR meðal annars með þeim kennurum sem á þurfa að halda, með það að markmiði að bæta árangurinn strax á sama misseri. Lokakennslumatið er hluti af árlegum starfsmannaviðtölum fastra starfsmanna og kennslumat er einnig skoðað í tengslum við ákvarðantöku um endurráðningu stundakennara.


 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica