Umhverfisvefur HR
Meðal stærstu viðfangsefna 21. aldarinnar er að stuðla að sjálfbæru samfélagi með sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og breytingum á samskiptum manns og náttúru. Háskólar hafa mikilvægu hlutverki við að byggja upp þekkingu á þessu sviði og vera fyrirmynd að því hvernig einstaklingar og atvinnulíf geta nýtt þau tækifæri sem felast í umhverfisvænum aðferðum og lifnaðarháttum.
Háskólinn í Reykjavík hefur sett sér umhverfisstefnu, og hér á umhverfisvefnum er stefnan kynnt og gerð grein fyrir því starfi sem tengist innleiðingu hennar.
Við mótun umhverfisstefnu HR var skoðað hver áhrif skólans eru á umhverfið, og hvað skólinn getur gert til að auka umræðu og vitund nemenda og starfsfólks um umhverfismál. Skoðað var hvaða leiðir eru færar og æskilegar til að hafa auka jákvæð áhrif og draga úr neikvæðum. Samgöngur til og frá skólanum eru veigamikill þáttur hvað varðar umhverfisáhrif skólans og var sjónum sérstaklega beint að þeim. Áherslur í kennslu og rannsóknum eru ekki síður stór áhrifaþáttur, og því eru kennsla og rannsóknir hluti af umhverfisstefnunni. Afrakstur vinnunnar er heildstæð stefna ásamt aðgerðaáætlun í umhverfismálum.
Hvað er sjálfbær þróun?
“Sjálfbær þróun er … þróun sem uppfyllir þarfir núlifandi kynslóða án þess að stefna í hættu möguleikum seinni kynslóða á að uppfylla þarfir sínar. (…) Þegar allt kemur til alls er sjálfbær þróun þó ekki endanlegt jafnvægisástand heldur fremur ferli breytinga þar sem nýting auðlinda, stýring fjárfestinga, stefna í tækniþróun og kerfisbreytingar eru bæði í samræmi við þarfir nútímans og framtíðarinnar.”
Úr skýrslu Brundtland-nefndar Sameinuðu Þjóðanna “Our Common Future” 1987 (þýðing: Sjálfbær þróun. Ný stefna fyrir Norðurlönd. TemaNord 2000)

