Aðgerðir
- Vissir þú að í HR fleygðum við 400.000 plastglösum á árinu 2008?
- Vissir þú að HR keypti prentpappír og prenthylki fyrir 9 milljónir króna á árinu 2008?
- Vissir þú að prentarapappír og prenthylki hækkuðu um næstum 25% milli áranna 2008 og 2009?
Ýmsar breytingar á rekstri skólans hafa verið gerðar frá og með árinu 2009, og hafa stoðdeildir skólans sem annast innkaup og rekstur haft forystu um þær.
Árangur næst samt ekki nema allir starfsmenn HR séu tilbúnir að koma í liðið!
Þau skref sem hafa verið stigin eru þessi:
Hætt að nota plastglös fyrir vatn og kaffi starfsmanna.
- Áhersla á að hætta allri óþarfri prentun.
- Eingöngu margnota umslög í innanhússpósti.
- Settir upp endurvinnslu-kassar fyrir pappír við allar starfsstöðvar og í kennslustofum.
- Prentun minnkuð með lækkuðum prentkvóta sem er innifalinn í skólagjöldum nemenda.
- Sérmerkt bílastæði fyrir utan HR í Nauthólsvík fyrir samnýtta bíla.
- Bættar almenningssamgöngur í Nauthólsvík, með tveimur strætóleiðum á svæðið.
- Samningar gerðir við umhverfisvottaðan ræstingaaðila um ræstingu í öllum húsum HR.
- Stundaskrá HR færð aftur um 15 mínútur til að jafna álag á umferðargötum í nágrenni HR.
- Ílát fyrir sorpflokkun í fjóra flokka á göngum hússins í Nauthólsvík.
- Ferðavenjukönnun var gerð vorið 2010. Sjá niðurstöður hér.

