Ferðavenjukönnun 2010
Ferðavenjukönnun HR var gerð í fyrsta skipti dagana 11. mars til 22. mars 2010. Könnunin var send til allra nemenda og starfsmanna HR og var megintilgangurinn að komast að því hvaða ferðamáta menn væru að nota til að komast til og frá HR.
Niðurstöður könnunarinnar verða meðal annars notaðar við innleiðingu umhverfisstefnu HR, en samgöngur eru ein meginstoð umhverfisstefnunnar, og meðal markmiða hennar er að hvetja til notkunar visthæfra bíla og almenningssamgangna og styðja við umhverfisvænar og heilsusamlegar ferðavenjur nemenda og starfsmanna.

