Framkvæmdastjórn HR ákvað í janúar 2009 að setja saman hóp til að móta umhverfisstefnu Háskólans í Reykjavík. Stýrihópur var skipaður og skilaði hann af sér í lok ársins. Stýrihópurinn verður yfirstjórn skólans áfram innan handar við innleiðingu umhverfisstefnunnar.
Í stýrihópi umhverfisstefnu HR eru:
- Aðalsteinn Leifsson, Viðskiptadeild
- Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Tækni- og verkfræðideild, formaður
- Birna Baldursdóttir, Kennslufræði- og lýðheilsudeild
- Hlynur Stefánsson, Tækni- og verkfræðideild
- Jóhann Hjartarson, Fjármála- og þróunarsviði
- Kári Harðarson, Tölvunarfræðideild
- Ritari hópsins er Vilborg Jónudóttir, deildarfulltrúi TVD
Stýrihópurinn naut auk þess ráðgjafar Huldu Steingrímsdóttur hjá Alta og Þorsteins R. Hermannssonar hjá Mannviti.
Stýrihópurinn hafði mikið samráð við starfsfólk og nemendur HR við mótun umhverfisstefnunnar. Í því skyni var leitað til einstakra aðila um þátttöku í kynningar- og hugarflugsfundum, auk þess sem öllum áhugasömum var boðið til vinnustofu um mótun umhverfisstefnu þann 17. apríl 2009. Þá voru upplýsingar um verkefnið kynntar jafnóðum hér á vefnum og starfsfólk og nemendur hvött til að kynna sér málið og koma hugmyndum á framfæri.
Ábyrgðarmenn fyrir innleiðingu umhverfisstefnunnar eru Gunnar Guðni Tómasson forseti tækni- og verkfræðideildar og Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs. Netfangið umhverfi@ru.is skal notað til að koma hugmyndum á framfæri við ábyrgðarmenn umhverfisstefnunnar.

