Umhverfisstefna HR

Framtíðarsýn

Við sköpum og miðlum þekkingu um umhverfismál og sjálfbæra þróun og sýnum ábyrgð og nýja hugsun í umhverfismálum í daglegum athöfnum og rekstri.

Stoðir

Kennsla
Rannsóknir
Samgöngur
Rekstur
Samfélag
Umhverfismál og sjálfbærni verði sýnileg og fléttuð inn í kennslu og námsefni á öllum fagsviðum Háskólans í Reykjavík.
Í rannsóknum á vegum Háskólans í Reykjavík verði lögð áhersla á að skapa nýja þekkingu og þróa lausnir á ólíkum fræðasviðum til að takast á við viðfangsefni framtíðarinnar á sviði umhverfismála og sjálfbærni.
Samgöngur til og frá Háskólanum í Reykjavík verði greiðar, vistvænar og stuðli að bættri heilsu.
Rekstur Háskólans í Reykjavík verði til fyrirmyndar í umhverfismálum.
Háskólinn í Reykjavík kappkosti að miðla upplýsingum um umhverfismál og sjálfbærni og umhverfisstefnu HR jafnt innan skólans til nemenda og starfsfólks sem og til samfélagsins almennt.

Kennsla

Markmið

Umhverfismál og sjálfbærni verði sýnileg og fléttuð inn í kennslu og námsefni á öllum fagsviðum Háskólans í Reykjavík.

Skref

  • Á nýnemakynningu fái allir nýnemar Háskólans í Reykjavík kynningu á umhverfisstefnu HR.
  • Háskólinn í Reykjavík bjóði stutt kynningarnámskeið fyrir alla nemendur og kennara skólans um umhverfismál, sjálfbæra þróun og samfélagslega ábyrgð.
  • Háskólinn í Reykjavík bjóði lengri þverfagleg námskeið fyrir alla nemendur skólans um umhverfismál, sjálfbæra þróun og samfélagslega ábyrgð.

Skrefamælar

  • Fjöldi umhverfisnámskeiða í boði.
  • Fjöldi nemenda á umhverfisnámskeiðum.
  • Ánægja nemenda á umhverfisnámskeiðum (kennslumat).

Rannsóknir

Markmið

Í rannsóknum á vegum Háskólans í Reykjavík verði lögð áhersla á að skapa nýja þekkingu og þróa lausnir á ólíkum fræðasviðum til að takast á við viðfangsefni framtíðarinnar á sviði umhverfismála og sjálfbærni.

Skref

  • Á umhverfisvef síðum Háskólans í Reykjavík verði yfirlit yfir verkefni um umhverfismál og sjálfbærni við HR – verkefni sem er lokið, verkefni sem unnið er að og hugmyndir að verkefnum.

Skrefamælar

  • Fjöldi verkefna um umhverfismál og sjálfbærni á umhverfisvefsíðumHáskólans í Reykjavík.

Samgöngur

Markmið

Samgöngur til og frá Háskólanum í Reykjavík verði greiðar, vistvænar og stuðli að bættri heilsu.

Skref

  • Við HR verðihvetjandiumhverfi og aðstaðafyrirgöngu og hjólreiðartil og fráskólanum.
  • HR beiti sér fyrir góðum almenningssamgöngum til og frá skólanum og hvetji til notkunar almenningssamgangna með góðri aðstöðu og öflugri upplýsingagjöf.
  • HR hvetji starfsfólk og nemendur til að samnýta bíla til og frá skólanum með því að bjóða upp á sérstakan þjónustuvef, HRfar.
  • HR hvetji til notkunar visthæfra bíla og samflots með því að bjóða þeim sem aka á visthæfum bílum og samnýta bíla forgangsaðstöðu á bílastæðum við skólann.
  • HR hvetji til visthæfs og heilsusamlegs ferðamáta starfsfólks og nemenda með því að bjóða rafbíla og rafhjól til afnota til að sinna erindum utan skólans yfir daginn.
  • Á umhverfisvef HR verði reiknivél um CO2losun, hitaeiningabrennslu og eldsneytiskostnað mismunandi ferðamáta fyrir ferðir til og frá HR ásamt „korterskorti“ sem sýnir göngu- og hjólavegalengdir frá HR.
  • HR móti hvatakerfi til að stuðla að umhverfisvænum ferðamáta starfsfólks og nemenda.
  • Stundaskrá HR (upphaf fyrstu kennslustunda dagsins) verði aðlöguð að álagstoppum í umferð í nágrenninu í samráði við Reykjavíkurborg og stóra vinnustaði í nágrenninu.

Skrefamælar

  • Ferðamátistarfsfólks og nemendatil og frá HR (mælt í Ferðavenjukönnun HR á tveggjaárafresti).
  • Áætluð losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum til og frá HR, byggt á niðurstöðum Ferðavenjukönnunar HR.
  • Nýting rafbíla/rafhjólaleigu.

Rekstur

Markmið

Rekstur Háskólans í Reykjavík verði til fyrirmyndar í umhverfismálum.

Skref

  • HR móti sér vistvæna innkaupastefnu, t.d. varðandi ræsti- og hreinlætisvörur, tölvubúnað, prenthylki, einnota rekstrarvörur, ritföng og pappír Reglur verði settar um notkun þessa búnaðar sem lágmarki sóun og úrgang.
  • HR hvetji til endurvinnslu og sorpflokkunar með aðgengilegum ílátum víðsvegar um skólann með greinargóðum leiðbeiningum.
  • HR hvetji nemendur og starfsfólk til draga úr pappírsnotkun með því innleiða og hvetja til rafræns kennslu- og kynningarefnis, stilla prentara á prentun báðum megin o.fl.
  • HR útfæri allt kynningarefni skólans m.t.t. umhverfisáherslna (til dæmis lágmarka notkun prentsvertu og nota rafrænt efni þar sem hægt er).
  • HR noti bestu hugbúnaðarlausnir á hverjum tíma til að lágmarka óþarfa prentun og forðast sóun á pappír.
  • Prentkvóti sem er innifalinn í skólagjöldum verði lækkaður til að nemendur verði meðvitaðri um kostnað við pappír og prentun og til að draga úr prentun.

Skrefamælar

  • Pappírsnotkun.
  • Rafmagnsnotkun.
  • Magn flokkaðs sorps til endurvinnslu, s.s. flaskna, dósa, pappírs og bylgjupappa.
  • Skrefamælar verða jafnframt útfærðir við gerð vistvænnar innkaupastefnu.

Samfélag

Markmið

Háskólinn í Reykjavík kappkostar að miðla upplýsingum um umhverfismál og sjálfbærni og umhverfisstefnu HR jafnt innan skólans til nemenda og starfsfólks sem og til samfélagsins almennt.

Skref

  • HR haldiútivefsiðum um umhverfismál og umhverfisstarfskólans, á vefsvæði HR.
  • Miðaðverðiþvívekjaáhuga og vitund um umhverfisstarfskólansmeðkynningarefni í anddyri og í öðrumalmannarýmumskólans.
  • Séðverðitilþessgreinargóðar og aðgengilegarupplýsingar um almenningssamgöngur, göngu og hjólreiðarverði í anddyri, á vef HR og í kynningarefnifunda og ráðstefna á vegum HR.
  • HR takiþátt í alþjóðlegusamstarfi á sviðiumhverfismála og sjálfbærni.

Skrefamælar

  • Heimsóknir á umhverfisvef HR.
  • Þátttaka í alþjóðlegusamstarfiháskóla og annarraaðila á sviðisjálfbærni og samfélagslegrarábyrgðar.

Framfylgd

  • Háskólinn í Reykjavík framfylgir lögum og reglum sem sett hafa verið um umhverfismál og varða starfsemi HR. HR stefnir jafnframt að vottun á umhverfisstarfi skólans.
  • Háskólinn í Reykjavík vinnur á hverjum tíma ávallt að því að framfylgja, kynna og þróa umhverfisstefnu HR, vakta árangur og stuðla að bættum árangri HR í umhverfismálum. Í því skyni eru m.a. skilgreind skref sem stigin verða undir hverri stoð umhverfisstefnunnar og skrefamælar til að fylgjast með árangri umhverfisstarfins.

 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica