Viðburðir HR - Heildarlisti

Staða mannauðsstjórnunar: Kynningarfundur um CRANET – rannsóknina 2009

29.10.2009

Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík kynnir niðurstöður CRANET-rannsóknarinnar á íslenskri mannauðsstjórnun fimmtudaginn 29. október kl. 8:30–10:00 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2.

Niðurstöður byggja á svörum 138 stærstu vinnuveitenda á Íslandi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Cranfield Network on International Human Resource Management og er að þessu sinni styrkt af fjármálaráðuneytinu, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins og Þróunarsjóði Háskólans í Reykjavík. Höfundar skýrslunnar eru Arney Einarsdóttir, Ásta Bjarnadóttir og Finnur Oddsson.

Meðal viðfangsefna skýrslunnar eru:

    •    Staða mannauðsstjórnunar í skipulagsheildinni
    •    Mönnun og ráðningar
    •    Starfsþróun og endurgjöf
    •    Laun og umbun
    •    Samskipti við starfsmenn
    •    Mannafli og hagræðingaraðgerðir
    •    Þroskastig mannauðsstjórnunar

Boðið er upp á morgunverð. Aðgangur er ókeypis en sætafjöldi er takmarkaður. Vinsamlega skráið ykkur á netfanginu skraning@hr.is. Nánari upplýsingar er að finna á www.hr.is/cranet.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica