Viðburðir HR - Heildarlisti

Alþjóðleg athafnavika í HR - dagskrá þriðjudags

17.11.2009

FÖGNUM ALÞJÓÐLEGRI ATHAFNAVIKU
- TÖKUM VIRKAN ÞÁTT Í FJÖLBREYTTUM VIÐBURÐUM VIKUNNAR!

Sjá heildardagskrá HR í Alþjóðlegri athafnaviku.

Þriðjudagur 17. nóvember 2009

  • Ef við - þá þú! Hvernig ná kvenfrumkvöðlar árangri?
    Kl. 12.10 – 13.00. Staðsetning: HR - Ofanleiti 2, stofa 101.
    Allir velkomnir!
    Frummælendur:
    • Svana Helen Björnsdóttir, varaformaður Samtaka sprotafyrirtækja og framkvæmdastjóri Stika ehf.  Svana Helen var útnefnd fyrirmyndarfrumkvöðull (Female Entrepreneurship Ambassador) af Enterprise Europe Network á Íslandi.
    • Kristín Halldórsdóttir, verkefnastjóri Evrópumiðstöðvar Impru, Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
    • Ingibjörg Valgeirsdóttir, stofnandi AssA, þekking og þjálfun
    Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, stýrir fundinum
  • Konur í verkfræði – frumkvöðlar
    Kl. 17.00 – 18.00. Staðsetning: HR - Ofanleiti 2, stofa 131a. Allir velkomnir!
    Frummælendur eru verkfræðingarnir:
    • Jóhanna Harpa Árnadóttir, formaður Verkfræðingafélags Íslands og fyrsta konan til að gegna því embætti í nærri 100 ára sögu félagsins. Jóhanna starfar hjá Norðuráli.
    • Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri Promens hf.
    • Guðrún Sævarsdóttir, lektor við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík
    Arna Óskarsdóttir, meistaranemi í verkfræði við HR, stýrir fundinum.
    Arna hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands árið 2008 fyrir verkefnið rafskautanet fyrir fingurendurhæfir. 
  • Athafnagleði kvenna - athafnatorg. Hugmyndhús Háskólanna.
    Kl. 20.00. Staðsetning: Hugmyndahús Háskólanna við Grandaveg.
    Allar konur sérstaklega velkomnar!

    Hugmyndahús Háskólann verður galopið fyrir góðum hugmyndum. Við ætlum að fá athafnaglaðar konur til að kynna fyrirtæki/starfsemi sína á athafnatorgi - jafnt framleiðsluna og ekki síður ferðalag hugmynda þeirra.

Framkvæmdaraðili Alþjóðlegu athafnavikunnar á Íslandi er Innovit. Sjá dagskrá á landinu öllu og nánar um vikuna hér.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica