Viðburðir HR - Heildarlisti
Alþjóðleg athafnavika í HR - dagskrá fimmtudags
FÖGNUM ALÞJÓÐLEGRI ATHAFNAVIKU
- TÖKUM VIRKAN ÞÁTT Í FJÖLBREYTTUM VIÐBURÐUM VIKUNNAR!
Sjá heildardagskrá HR í Alþjóðlegri athafnaviku
.
Fimmtudagur 19. nóvember 2009
- Fjármálalæsi og frumkvöðlar
Kl. 13.00 – 14:00. Ætlað nemendum í Réttarholtsskóla. Staðsetning: Réttarholtsskóli.
Breki Karlsson forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi við HR fjallar um fjármálalæsi og mikilvægi þess þegar tekist er á við ný verkefni.
- Nýsköpun og frumkvöðlastarf notenda
Kl. 12.00 – 12.50. Staðsetning: HR - Ofanleiti 2, stofa 201. Allir velkomnir!
Rögnvaldur J. Sigurðsson fjallar um nýsköpun og frumkvöðlastarf notenda og kynntar fyrstu niðurstöður nýlegrar könnunar á umfangi þess hér á landi. Venjulega er gert ráð fyrir að hlutverk notenda í nýsköpun sé útskýra þarfir sínar eða að staðfesta góðar hugmyndir. Notendur stunda þó oft nýsköpun á eigin vegum og stofna fyrirtæki í kringum hugmyndir sínar.
- Nýjar aðferðir við hugbúnaðarþróun
/ Agile Testing, Uncertainty, Risk, and Why It All Works
Kl. 12.00 – 13.00. Staðsetning: HR - Ofanleiti 2, stofa 101. Allir velkomnir!
Háskólinn í Reykjavík og Betware bjóða til opins fyrirlestrar um nýjustu aðferðir í hugbúnaðarþróun. Elisabeth Hendrickson mun fjalla up hvernig hugbúnaðarprófanir í Agile-aðferðarfræði lágmarka áhættu og minnka óvissu og þar með auka snerpu fyrirtækja.
- Ungir frumkvöðlar – klárir krakkar. Ad Astra
Kl. 17:00 – 18:00. Staðsetning: HR - Opni háskólinn, Ofanleiti 2, stofa 338.
Allir velkomnir!
Nemendur Ad Astra munu sýna hvað þau eru búin að vinna að í vetur, þar á meðal gerð tölvuleikja og drög að stuttmyndum. Nemendurnir eru á aldrinum 11 til 15 ára og eiga það sameiginlegt að vera námsfús og klárir krakkar. Forsvarsmenn Ad Astra kynna stuttlega helstu námskeið vetrarins.
- Bensínbíl breytt í rafbíl – opin smiðja
Kl. 13.00 – 20.00. Staðsetning: Lagnakerfamiðstöð Íslands á Keldnaholti. Allir velkomnir!
Almenningi gefst kostur á að líta við í Lagnakerfamiðstöðinni þar sem nemendur í tækni- og verkfræðideild HR vinna nú hörðum höndum við að breyta bensínbíl í rafmagnsbíl.
Sjá nánar um verkefnið á http://projects.ru.is/projects/electric-car/
Framkvæmdaraðili Alþjóðlegu athafnavikunnar á Íslandi er Innovit. Sjá dagskrá á landinu öllu og nánar um vikuna hér.

