Meistaraprófsfyrirlestur REYST
Orkuskólinn REYST er í eigu HR, HÍ og OR. Nemendur REYST eru skráðir í báða háskólana og útskrifast með sameiginlega prófgráðu (120 ECTS meistarapróf).
Fyrsti meistaraprófsfyrirlestur Orkuskólans REYST verður haldinn föstudaginn 18. desember kl. 11-12, hjá OR að Bæjarhálsi 1.
Nemandinn Árni Vignir Pálmason flytur fyrirlestur um ritgerð sína: Wind power pumped storage system for hydro power plants.
Ritgerðin fjallar um þá hugmynd að nota vinddælustöð til að dæla vatni í uppistöðulón til að minnka lónsstærðina á nýjum lónum eða til að auka rafmagnsframleiðslu í vatnstorkuveri. Í stað þess að nota vindtúrbínu til að framleiða rafmagn sem keyrir dælurnar, er öxull notaður til að tengja vindtúrbínuna og dælurnar.
Arðsemismat var gert fyrir uppistöðulóns minnkunina og rafmagnsframleiðsluna. Vinddælustöð fyrir vantaflsver með öxuldrifnum dælum er ekki notuð í dag. Kostnaðarmat og arðsemi-útreikningar leiða í ljós hagkvæmni þessarar tækni.
Prófdómari verður Ágúst Valfells, lektor og sviðsstjóri við Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Meistaraprófsnefnd skipa þau Halldór Pálsson, lektor, Páll Jensson, prófessor og Helga Kristjánsdóttir, sérfræðingur, öll við Háskóla Íslands. Allir velkomnir.
Allir velkomnir. Upplýsingar um REYST má finna á www.reyst.is.

