Verður takmarkaðri ábyrgð hluthafa aflétt?
Verður takmarkaðri ábyrgð hluthafa aflétt?
Um lagaleg og siðferðileg álitamál þegar hlutafélagaformið er misnotað
Lagadeild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir hádegisfundi þriðjudaginn 12. janúar nk. kl. 12:00-13:00 í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2.
Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður og aðjúnkt við HR, fjallar um eðli takmarkaðrar ábyrgðar í hlutafélögum og hvort unnt sé að víkja frá henni í undantekningartilvikum, þannig að hluthafar verði látnir bera persónulega ábyrgð á skuldbindingum sem til er stofnað í nafni hlutafélags.
Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur við HR, fjallar um þá spurningu hvort réttlætanlegt sé að aflétta hinni takmörkuðu ábyrgð í þeim aðstæðum þar sem hlutafélagaformið hefur verið misnotað. Þá fjallar hann um hvað teljist hæfileg refsing þegar misnotkun af því tagi kemst upp.
Að fundinum loknum verða almennar umræður.
Fundarstjóri er Sigurður Tómas Magnússon sérfræðingur við lagadeild HR.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

