Framadagar 2011
Framadagar er árlegur viðburður í Háskólalífinu þar sem helstu fyrirtæki landsins kynna starfsemi sína fyrir háskólanemendum.
Einnig munu þekktir eintaklingar úr viðskiptalífinu halda örfyrirlestra yfir daginn, kennarar úr HÍ og HR munu etja kappi í spurningakeppni og lukkuhjól verður á staðnum þar sem tugir vinninga verða í boði.
Markmið Framadaga er að háskólanemar geti kynnt sér fyrirtæki og aukið þar með líkur á sumarvinnu, framtíðarstarfi eða verkefnavinnu. Sömuleiðis að fyrirtæki kynnist mögulegum starfsmönnum hvort sem er sumarstarfsmönnum eða framtíðarstarfsmönnum. Sannkallað stefnumót nemenda og fyrirtækja.

