Háskóladagurinn 2010 - HR í Ráðhúsinu
Laugardaginn 20. febrúar, kl. 11-16, kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár.
Kynningin fer fram á tveimur stöðum í borginni. Háskóli Íslands verður á Háskólatorgi, Gimli og Odda í Háskóla Íslands og í Ráðhúsi Reykjavíkur verða Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Þá verður á sama tíma boðið upp á kynningu á framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð í Norræna húsinu.
Nemendur háskólanna, kennarar og námsráðgjafar taka á móti gestum og miðla af reynslu sinni. Einnig verður kynnt margskonar þjónustustarfsemi við nemendur.
6 háskólar kynna námsframboð sitt í Ráðhúsi Reykjavíkur
Háskólinn í Reykjavík er einn 6 háskóla sem í Ráðhúsi Reykjavíkur kynna fjölbreytt námsframboð á grunn- og meistarastigi: Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands.
Námsframboð þessara skóla er, eins og nöfn þeirra bera með sér, ákaflega fjölbreytt og spannar allt frá hrossarækt og myndlist yfir í hefðbundnari greinar háskólanáms á borð við viðskiptafræði og lögfræði.
Háskóli Íslands á Háskólatorginu - Gimli og Odda
Á Háskólatorgi Háskóla Íslands, og í Gimli og Odda kynna allar deildir HÍ námsframboð sitt í grunnnámi og skipta námsleiðir hundruðum. Námsráðgjafar veita leiðsögn og ráðgjöf og fjölmargar þjónustustofnanir kynna starfsemi sína.
Sjá nánar á haskoladagurinn.is

