Ein stærsta frumkvöðlaráðstefna heims á Íslandi
Haldin í samstarfi MIT, HR og Innovit
Ein stærsta frumkvöðlaráðstefna heims fer fram hér í Reykjavík dagana 24. til 26. mars. Hún er haldin í samstarfi MIT-háskólans í Boston, Háskólans í Reykjavík og Innovit.
Meginþema ráðstefnunnar er hvernig yfirvinna megi efnahagskreppu með nýsköpun, frumkvöðlastarfi og endurnýjanlegri orku.
Búist er við því að ráðstefnan dragi til sín hátt í þrjú hundruð frumkvöðla, fjárfesta, stjórnmálamenn, háskólakennara og nemendur víða að úr heiminum.
Í þeim hópi eru vel þekktir frumkvöðlar, svo sem Robin Chase, stofnandi og fyrrverandi forstjóri Zipcar og GoLogo, en hún var í fyrra valin ein af 100 áhrifamestu einstaklingum heims af Time Magazine.
Aðrir fyrirlesarar eru: Alf Bjørseth, stofnandi Renewable Energy Corp í Noregi og handhafi „Royal Order St Olav“. Nader F. Darehshori, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Houghton Mifflin og Cambian Learning. Og Kenneth P. Morse, raðfrumkvöðull og stofnandi frumkvöðlaseturs MIT háskóla.
Ráðstefnan er framúrskarandi vettvangur til að efla þekkingu og tengslamyndun milli háskólanema, frumkvöðla, sprotafyrirtækja, fjárfesta, háskólakennara, fyrirtækja og stofnana frá öllum heimsálfum.
Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna hér.

