Viðburðir HR - Heildarlisti

Ein stærsta frumkvöðlaráðstefna heims á Íslandi

Haldin í samstarfi MIT, HR og Innovit

5.3.2010

Ein stærsta frumkvöðlaráðstefna heims verður haldin í Reykjavík dagana 24. til 26. mars. Ráðstefnan er haldin í samstarfi MIT-háskólans í Boston, Háskólans í Reykjavík og Innovit.

Meginþema ráðstefnunnar er hvernig yfirvinna megi efnahagskreppu með nýsköpun, frumkvöðlastarfi og endurnýtanlegri orku.

Þetta er í þrettánda sinn sem ráðstefna sem þessi er haldin á vegum MIT. Búist er við um þrjú hundruð þátttakendum og að í þeim hópi verði frumkvöðlar, fjárfestar, stjórnmálamenn, háskólakennarar og nemendur.

Þekktir frumkvöðlar verða með erindi og má þar nefna Robin Chase, stofnanda og fyrrverandi forstjóra Zipcar og GoLogo. Hún var í fyrra valin ein af 100 áhrifamestu einstaklingum heims af Time Magazine.

Auk hennar halda m.a. erindi þau Alf Bjørseth, stofnandi Renewable Energy Corporation, Nader Darehshori, fyrrverandi forstjóri Houghton Mifflin útgáfurisans og stofnandi Cambian Learning og Ken Morse, stofnandi MIT Enrepreneurship Center, en hann hefur komið hundruðum sprotafyrirtækja á legg.

Skráning er hafin og fer hún fram hér.

 

 

 

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica