Viðburðir HR - Heildarlisti

Fræðimenn í HR efna til fyrirlestramaraþons föstudaginn 19. mars

19.3.2010

Háskólinn í Reykjavík heldur sitt árlega fyrirlestramaraþon í aðalbyggingu skólans við Nauthólsvík 19. mars.  42 fræðimenn flytja örstutt erindi og eru viðfangsefnin margvísleg.

Sjá dagskrá hér.

Sem dæmi um erindi má nefna:  Betri er mögur sátt en feitur dómur. Áhrif kreppunnar á líðan ungs fólks. Tölvum kennt að haga sér vel. Hvatar í samningaviðræðum. Hefur fé farið betra?

Fyrirlestramaraþonið hefst kl. 12:30 og lýkur kl. 16:30. Það fer fram í tveimur stofum. Fundarstjórar eru  Ragnhildur Helgadóttir,  prófessor við lagadeild HR og Brynjar Karlsson, forstöðumaður rannsókna og framhaldsnáms við HR.

Í upphafi maraþonsins flytja erindi þeir Magnús Már Halldórsson, prófessor við tölvunarfræðideild HR og Guðmundur Sigurðsson, prófessor við lagadeild HR. Magnús hlaut nýverið rannsóknarverðlaun HR fyrir árið 2010 og Guðmundur hlaut kennsluverðlaun ársins.

Eftir fyrirlestramaraþonið verður boðið upp á léttar veitingar.

Dagskrá fyrirlestramaraþons.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica