HR-dagurinn: Háskólinn í Reykjavík býður þjóðinni heim
Nemendur og starfsfólk Háskólans í Reykjavík taka á móti gestum og gangandi í nýjum húsakynnum skólans við Nauthólsvík á HR-daginn,
laugardaginn 20. mars.
Auk námskynninga verður ýmislegt forvitnilegt í boði. Almenningur
getur til dæmis látið mæla samningastíl sinn og áhættufælni, skoðað
gervigreindarrannsóknir hjá Gervigreindarsetrinu, lært fótbolta og
fimleika og fengið skattaráðgjöf hjá Lögréttu, félagi laganema við HR.
Erlendir nemar skólans bjóða gestum að smakka framandi rétti og farið
verður í skoðunarferðir um húsið. Þá fer fram hin árlega
HR-áskorun en það er hönnunarkeppni fyrir framhaldsskólanema. Að þessu
sinni verður keppt í hönnun og smíði á eggjavörpu. Keppt verður til úrslita.
Við byrjum daginn með sjósundi kl. 11:00. Dagskrá hefst innandyra kl. 12:00 og námskynningar kl. 13:00. Sjá yfirlit yfir námskynningar neðar á síðunni.
| DAGSKRÁ HR-DAGSINS |
|
|---|---|
| 09:00 – 18:00 | SKATTARÁÐGJÖF Lögréttu og Deloitte (sjá lýsingu). Stofa M.1.05 |
| 11:00 |
SJÓSUND í Nauthólsvík og slökun á Ylströndinni |
| 11:30 | GÖNGUFERÐ um Öskjuhlíðina, mæting við anddyri |
| 12:00 | ÁVARP: Ari K. Jónsson, rektor Dagskrá hefst í aðalbyggingu HR í Nauthólsvík |
| 12:00 – 14:30 |
VÉLSMIÐJA OG ORKUTÆKNISTOFA: Verkefni |
| 12:15 | GOSPELKÓR HR |
| 12:30 | HÁSPENNA og GEISLASVERÐ Eðlisfræðingar tækni-og verkfræðideildar fá hárin til að rísa |
| 12:30 |
SJÁLFVIRKUR KAFBÁTUR nemenda í tækni- og verkfræðideild verður prófaður. |
| 12:45 | Hljómsveitin THE CRAZY BREWERY |
| 13:00 – 16:00 |
NÁMSKYNNINGAR, sjá dagskrá neðar |
| 13:00 | SKOÐUNARFERÐ með arkítektum hússins (ARKÍS) og fyrirlestur um bygginguna. Stofa: Bellatrix |
| 13:00 – 14:00 | SJÁLFVIRKI LESTRAR- OG SÝNDARKENNARINN Verkefni tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands |
| 13:00 – 15:00 | BÓLUR OG HRUN, stofa: M.104 Hafðu áhrif! Jón Þór Sturluson |
| 13:15 – 14:15 | ÞINN SAMNINGASTÍLL, stofa: V.110 Aðalsteinn Leifsson, fyrirlestur um samningatækni. Könnun lögð fyrir þá sem vilja þekkja sinn samningastíl |
| 13:15 | KÖRFUBOLTAKENNSLA |
| 13:30 |
UPPLÝSINGAR UM EVRÓPUSAMBANDIÐ frá fyrstu hendi. Stofa: Herkúles 5, 2. hæð, Mars |
| 13:30 |
HR- ÁSKORUNIN: Úrslitakeppni í hönnun og smíði eggjavörpu. Lið í úrslitum reyna með sér. |
| 13:45 | Hljómsveitin THE CRAZY BREWERY. |
| 14:00 | ÖRUGGAR SÚKKULAÐISENDINGAR MEÐ TÖLVUM |
| 14:15 |
FIMLEIKAKENNSLA |
| 14:30 | GOSPELKÓR HR |
| 14:45 | HÁSPENNA og GEISLASVERÐ Eðlisfræðingar tækni-og verkfræðideildar fá hárin til að rísa. |
| 15:00 |
SÚLUR 2010: Keppt í súlubroti. Stofa V113, |
| 15:00 |
SKOÐUNARFERÐ með arkítektum hússins (ARKÍS) og fyrirlestur um bygginguna. |
| 15:15 | FÓTBOLTAKENNSLA |
| 15:30 | ÖRUGGAR SÚKKULAÐISENDINGAR MEÐ TÖLVUM |
| 15:45 | VERÐLAUNAAFHENDING: HR-ÁSKORUNIN |
| 16:00 |
Verðlaun veitt í getraunarsamkeppni - FrumgreinaMenntar |
NÁMSKYNNINGAR:
| NÁMSGREIN | KYNNINGAR |
|---|---|
| VERKFRÆÐI, grunnnám | Frá kl. 13:00 til 13:45. Betelgás |
| VERKFRÆÐI, meistaranám | Frá kl. 15:30 til 16:00. Betelgás |
| LÖGFRÆÐI, grunnnám | Frá kl. 13:30 til 14:00. Fönix 3 (dómsalur) |
| VIÐSKIPTAFRÆÐI, grunnnám | Frá kl. 14:00 til 14:30. Fönix 2 |
| VIÐSKIPTAFRÆÐI, meistaranám | Frá kl. 15:30 til 16:00. Fönix 2 |
| TÆKNIFRÆÐI, grunnnám | Frá kl. 14:00 til 14:45. Betelgás |
| TÖLVUNARFRÆÐI, grunnnám | Kl. 13:30 og 15:00. |
| TÖLVUNARFRÆÐI, meistaranám |
Kl. 14:00 og 15:30. Fönix 1 |
| ÍÞRÓTTAFRÆÐI, grunnnám | Frá kl. 14:30 til 15:00. Fönix 2 |
| SÁLFRÆÐI, grunnnám | Frá kl. 15:00 til 15:30, Fönix 2 |
| IÐNFRÆÐI og BYGGINGAFRÆÐI |
Frá kl. 15:00 til 15:45. Betelgás |
| FRUMGREINAMENNT | Frá kl. 15:30 til 16:00. FÖNIX 3 |
EINSTAKIR ÞÁTTTAKENDUR:
Tölvunarfræðideild – Gervigreindarsetrið sýnir tækni sem gerir
leikjaforritum kleift að nýta félagsleg lögmál til að stýra hegðun
fólks. Sjálfvirki lestrar- og sýndarkennarinn verður til sýnis en höfundur verkefnisins,
Gunnar Steinn Valgarðsson, svarar spurningum milli kl. 13 og 14. Hann var í ár tilnefndur til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.
Tækni- og verkfræðideild – Úrslitakeppni HR-áskorunarinnar fer fram, keppt verður í súlubroti, kafbátur prófaður, rafmagnsbíllinn verður til sýnis og Noway-tækið kynnt.
Lagadeild – Lögfræðiþjónusta Lögréttu, félags laganema við HR, veitir almenningi endurgjaldslausa ráðgjöf við gerð skattframtala frá kl. 9:00 - 18:00.
Viðskiptadeild – Gestir geta látið mæla samningastíl sinn og áhættufælni.
Kennslufræði- og lýðheilsudeild – Tilraunir í sálfræði: Áhrif skynjunar á skammtímaminni og vinnsluminni. Eiga karlar erfiðara en konur með að veita mörgum hlutum athlygli í einu? Verður skammtímaminni óhjákvæmanlega verra með aldrinum? Hvaða minnisaðferðir eru bestar? Þá fer fram körfuboltakennsla, fimleikakennsla og fótboltakennsla.
Opni háskólinn – Námsframboð Opna háskólans verður kynnt.
FrumgreinaMennt – Gestum gefst kostur á að taka þátt í getraunasamkeppni og verða veitt bókaverðlaun í lok dags. Starfsemi FrumgreinMenntar verður kynnt.
Stúdentafélagið – Stúdentafélag HR kynnir starfsemi sína og ritstjórn
Háskólablaðsins dreifir eintökum af fyrsta tölublaði Háskólablaðsins.
Alþjóðaskrifstofa – Erlendir nemendur við skólann bjóða upp á framandi rétti og hljómsveitin The Crazy Brewery leikur nokkur lög.
Bókasafn og upplýsingaþjónusta
Kl. 13:30 Erindið: Upplýsingar um Evrópusambandið frá fyrstu hendi.
Herkúles 5, 2. hæð, Mars.
Það kann að vera erfitt að rata í frumskógi Evrópuupplýsinga en í stuttu erindi verða kynntar nokkrar leiðir til þess að auðvelda almenningi að nálgast upplýsingar ESB.ESB heldur úti einu stærsta vefsvæði á Internetinu: http://europa.eu/. Sérstaklega verður kynnt leitarvélin SearchEuropa sem er sérsniðin Google-leitarvél sem eingöngu „gúglar“ vefsíður ESB.
Hugmyndahús háskólanna – Forsvarsmenn hússins kynna Útgerðina, verkefni um listir, tækni og vísindi. Hugmyndahúsið er samstarfsverkefni HR og LHÍ.
Klakið – Klakið - hjálpar þér að meta viðskiptahugmyndina þína.
Innovit – Gulleggið og fleira skemmtilegt.
REYST - Kynnir starfsemi sína og námsframboð.

