Viðburðir HR - Heildarlisti

Forritunarkeppni framhaldsskólanema

27.3.2010

Nærri níutíu framhaldsskólanemar taka þátt í árlegri forritunarkeppni framhaldsskólanna í Háskólanum í Reykjavík í dag, laugardag, 27. mars. Markmiðið er að  efla og örva forritunaráhuga íslenskra ungmenna.

Keppendur koma frá flestum framhaldsskólum landsins og raða þeir sér
niður í 29 lið. Í keppninni reynir á kunnáttu nemenda í forritun og sköpunargleði þeirra.

Keppnin fer fram í húsakynnum HR við Nauthólsvík og hefst hún kl. 9. Hún stendur fram á kvöld og er ráðgert að úrslit verði kynnt kl.19.30.

Keppninni er skipt í þrjár deildir: Alpha-deild, Beta-deild og Delta-deild. Keppendur raða sér í deildirnar eftir kunnáttu í forritun.

Tölvunarfræðideild HR stendur að keppninni með stuðningi Nýherja og CCP. Sigurvegarar í Alpha-deild fá niðurfelld skólagjöld hjá tölvunarfræðideild HR í eina önn en öll önnur verðlaun eru veitt af Nýherja. Þar má nefna myndavélar, minnislykla og heyrnartól.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica