Viðburðir HR - Heildarlisti
MBA: Case hádegisfundur með Marc Sachon frá IESE
Fimmtudaginn 8. apríl kl. 11:30 - 12:30 er haldinn case hádegisfundur á vegum MBA náms HR.
Þessi fundur er ætlaður þeim sem hafa áhuga á MBA námi og vilja kynna sér hvernig kennsla fer fram. Fundurinn er haldinn í salnum Herkúles 6 í byggingu HR í Nauthólsvík.
Marc Sachon, frá IESE, sem kennir Operational Management í MBA náminu stýrir fundinum.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir, en mikilvægt er að skrá sig áður með því að senda tölvupóst á MBA@ru.is. Skráðir þátttakendur fá send case sem þeir þurfa að kynna sér fyrir fundinn.

