Viðburðir HR - Heildarlisti
Hádegisfyrirlestur: Heilsa, hreyfing og þol 18 ára framhaldsskólanema
Kennslufræði- og lýðheilsudeild HR stendur fyrir hádegisfyrirlestri 15. apríl, kl. 12:30-13:30 í stofu 101, Ofanleiti 2.
Fyrirlesari er Erlingur Birgir Richardsson og fyrirlesturinn kallast Heilsa, hreyfing og þol 18 ára framhaldsskólanema.
Um rannsóknina sem fjallað er um:
Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna líkamlega heilsu 18 ára framhaldsskólanema með því að skoða helstu áhættuþætti fyrir lífstílssjúkdóma. Undirmarkmið var að bera saman áhættuþættina og kanna breytileikann í líkamlegri heilsu nemenda úr þeim þremur skólum sem rannsóknin náði til.

