Viðburðir HR - Heildarlisti

Dr. Christian Ketels heldur opinn fyrirlestur á vegum viðskiptadeildar HR

14.5.2010

Dr. Christian Ketels, frá Harvard Business School, heldur opinn fyrirlestur á vegum viðskiptadeildar HR um klasa og hvernig þeir hafa nýst þjóðum og svæðum til uppbyggingar.

Fyrirlesturinn fer fram frá kl.12:00-13:30 í salnum: Antares á 1. hæð í Nauthólsvík.

Klasar og klasastefna hafa notið vaxandi fylgis hjá ráðamönnum, ekki síst á Norðurlöndum og víðar í Evrópu. Það er hins vegar talsvert á reiki hvað sé í rauninni átt við með hugtökunum klasi og klasastefna. Þá hafa fjörugar umræður átt sér stað innan háskólasamfélagins þar sem efast er um ágæti klasa. 

Í fyrirlestri sínum færir Dr. Christian Ketels rök fyrir því að þær efasemdir byggjast að verulegu leyti á misskilningi á eðli og uppbyggingu klasaumhverfis. Einnig mun hann ræða um það hvernig Íslendingar geta stuðst við hugmyndafræði klasastefnunnar við endurreisn íslenska hagkerfisins, en myndun og starfsemi klasa geta verið ein af grunnstoðum varanlegs vaxtar í efnahagslífinu.

Ketels hefur starfar á stofnun Michael Porter við Harvard, Institute for Strategy and Competitiveness og hefur unnið náið með Porter, fremsta stefnumótunarhugsuði heims. Þá starfar hann við Stockhom School of Economics.

 

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica