Oddvitafundur í Háskólanum í Reykjavík
Oddvitar framboðslista í Reykjavík vegna komandi borgarstjórnarkosninga mætast á opnum hádegisfundi í Háskólanum í Reykjavík þann 5. maí.
Fundurinn fer fram í salnum Antares 1. hæð og hefst kl. 12. Hann stendur yfir í um það bil klukkutíma. Gert er ráð fyrir stuttum erindum frá frambjóðendunum en að því búnu svari þeir fyrirspurnum úr sal.
Eftirfarandi oddvitar verða á fundinum:
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar.
Einar Skúlason, oddviti Framsóknarflokks.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks.
Helga Þórðardóttir, oddviti Frjálslynda flokksins.
Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins.
Ólafur F. Magnússon, oddviti H-listans.
Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs.
Baldvin Jónsson, oddviti Reykjavíkurframboðsins.
Fundarstjórar verða Ásgeir Erlendsson sálfræðinemi við Háskólann í Reykjavík og Helga Björk Helgadóttir Valberg laganemi við Háskólann í Reykjavík.
Allir velkomnir!

