Viðburðir HR - Heildarlisti

Leikjadagur HR og IGI á laugardag

27.5.2010

Háskólinn í Reykjavík og Samtök leikjafyrirtækja á Íslandi (IGI, Icelandic Gaming Industry) standa fyrir „leikjadegi“ í húsnæði HR við Nauthólsvík, laugardaginn 29. maí. Tilgangurinn er að styrkja og efla vaxtarmöguleika íslenska tölvuleikjaiðnaðarins og fagna því að tölvunarfræðideild HR hafi formlega hafið samstarf við IGI og leikjaiðnaðinn um kennslu og rannsóknir á sviði tölvuleikja.

Leikjadagurinn hefst kl. 14.00 og stendur yfir til kl. 17.00. Flutt verða stutt erindi um leikjaiðnaðinn og í lok dags veitir IGI verðlaun fyrir bestu tölvuleikjahugmyndina.

Allir eru velkomnir!

Íslenski tölvuleikjaiðnaðurinn hefur vakið nokkra athygli á undanförnum mánuðum, enda er þessi iðnaður einn af fáum sem hefur eflst mjög í kjölfar kreppunnar. Þar er að finna blöndu af öflugum fyrirtækjum, eins og CCP og Betware, og ungum sprotafyrirtækjum, eins og Gogogic og Mindgames.

Samstarf tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík og leikjaiðnaðarins hefur verið að byggjast upp undanfarin ár og með samstarfssamningi við IGI er verið að gera það formlegt. Í samningnum felst meðal annars að starfsfólk fyrirtækja í IGI kenni valnámskeið sem nýtast m.a. nemendum í nýrri leikjaþróunarlínu HR. Þá er í samningnum kveðið á um samstarf við rannsóknir og þróun á sviði tölvuleikja, meðal annars í gegnum lokaverkefni nemenda.

Leikjaþróunarlínan verður í fyrsta sinn í boði í Háskólanum í Reykjavík í haust en hún er hluti af BSc-námi í tölvunarfræði. Hún samanstendur af fimm námskeiðum, eða sem samsvarar einni önn í náminu.

Góðir tölvuleikir eiga það almennt sameiginlegt að vera flókin hugbúnaðarkerfi og því er þörf á vel menntuðum tölvunarfræðingum í leikjaiðnaðinum. Nýrri leikjalínu er ætlað að mæta því.

Sjá nánar alla dagskrána.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica