Viðburðir HR - Heildarlisti

STOFNSETNING VITVÉLASTOFNUNAR ÍSLANDS

Föstudaginn 28, maí, kl. 14:00 – 17:00.

28.5.2010

Vitvélastofnun Íslands (Icelandic Institute for Intelligent Machines) heldur stofnhátíð  föstudaginn 28, maí frá kl. 14 til 17, á fyrstu hæð Háskolans í Reykjavík, fyrirlestrasalnum Bellatrix M1.01.

Á stofnhátíðinni mun Antonio Chella, vísindamaður og stjórnandi vélmennaseturs við Háskólann í Palermó á Ítalíu, flytja fyrirlestur um gervigreindar- og vélmennarannsóknir síns hóps síðastliðin 10 ár. Jafnframt flytja erindi dr. Ari K. Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík, dr. Sigríði Vésteinsdóttur framkvæmdastjóri Roche Nimblegen á Íslandi og dr. Kristinn R. Þórisson framkvæmdastjóri Vitvélastofnunar. Þá mun leynigestur opna nýjan vef stofnunarinnar.

RANNSÓKNIR OG SAMSTARF
Vitvélastofnun Íslands stundar rannsóknir á gervigreind og hermilíkönum, ört vaxandi sviðum innan hugbúnaðarverkfræði og -þróunar, sem gegna munu ykilhlutverki í hátækniiðnaði framtíðarinnar. Markmið stofnunarinnar er að brúa bilið milli háskóla og atvinnuvegar, auka flæði þekkingar, fólks og hugmynda, og styrkja þekkingargrunn Íslands á þessum mikilvægu hátæknisviðum. Vitvélastofnun Íslands, sem er sjálfseignastofnun, er samstarfsverkefni ýmissa einstaklinga, fyrirtækja og opinberra stofnana.

Öflugt samstarf við opinberar stofnanir, háskóla og fyrirtæki veitir Vitvélastofnun Íslands sérstöðu og grunn til að geta orðið brautryðjandi í hátæknirannsóknum og þróun í Evrópu innan 10 ára.

UM VITVÉLASTOFNUN

Á síðasta ári fékk verkefnið styrk úr Markáætlun Rannís 2009 um öndvegissetur og klasa, ásamt tveimur öðrum verkefnum sem valin voru úr yfir 100 umsóknum. Styrkurinn er til 7 ára og er þar um að ræða stærsta styrk sem veittur hefur verið til íslenskrar vísindastarfsemi. Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík veitir mótframlag til stofnunarinnar, ásamt CCP. Átakið hefur verið í undirbúningi síðustu 5 ár og er hugarfóstur dr. Kristins R. Þórissonar, dósents við tölvunarfræðideild HR, og veitir hann stofnuninni forstöðu.

Vitvélastofnun hefur þegar hafið samstarf við virtar erlendar stofnanir, þar á meðal Gervigreindarstofnun Þýskalands (DFKI), Háskóla Suður-Kaliforníu (USC) og Háskólann í Bielefeld í Þýskalandi. Þá er Vitvélastofnun í samstarfi við alþjóðlega hreyfinguna Artificial General Intelligence (AGI), en það eru samtök vísindamanna sem stunda rannsóknir á því hvernig skapa má vélar með mannlega greind.

STOFNENDUR
Árið 2005 var Kristinn meðstofnandi Gerivigreindarseturs Háskólans í Reykjavík (CADIA), ásamt dr. Yngva Björnssyni, og er það setur einn af sterkustu samstarfsaðilum Vitvélastofnunar. Meðal annarra samstarfsaðila í Vitvélastofnun eru dr. Kristinn Andersen (Marel hf), sem er stjórnarformaður, Helga Waage (Mobilitus), Hlynur Halldórsson hdl, og dr. Gísli Hjálmtýsson (Thule Investments), en þau sitja í stjórn Vitvéla. Þeir sem stóðu að undirbúningi, auk þeirra, eru Magnús Oddsson og Heiðrún Gígja Ragnarsdóttir, bæði starfsmenn Össurar hf.

BAKHJARLAR
Bakhjarlar Vitvélastofnunar eru, eins og áður sagði, Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, CCP og Rannís. Stofnunin er nú að kynna sér fleiri aðila sem hafa áhuga á að koma að verkefninu, enda er megin hlutverk Vitvélastofnunar að nýta samlegðaráhrif í hátæknirannsóknum og leiða saman krafta og hugmyndir úr ólíkum áttum í atvinnuveginum.




 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica