Viðburðir HR - Heildarlisti
Útskrift í frumgreinum
Laugardaginn 12. júní munu 36 nemendur útskrifast með frumgreinapróf frá HR. Flestir þeirra hafa áður lokið iðnnámi. Aðrir eru með ýmiss konar reynslu úr atvinnulífinu enda skilyrði inn í námið bæði bókleg og verkleg.
Athöfnin verður haldin í HR Nauthólsvík í stofu V1.01 – Antares og hefst kl. 15:00.
Dagskráin verður með hefðbundnu sniði, ávörp og tónlistaratriði auk sjálfrar útskriftarinnar.

