Viðburðir HR - Heildarlisti

Nýnemadagar: Grunnnám og frumgreinar

17.8.2010

Nýnemadagar fyrir nemendur sem eru að hefja grunnám og nám í frumgreinum við Háskólann í Reykjavík haustið 2010 verða haldnir dagana 17. og 18. ágúst í húsakynnum skólans  í Nauthólsvík.

Þriðjudaginn 17. ágúst er boðið upp á léttan morgunmat kl. 8:30 í Sólinni (miðrými byggingarinnar), dagskrá hefst svo með skólasetningu kl. 9:00 og lýkur kl. 12:15.

Fyrirliggjandi dagskrá:

nynemar_grunnnam_1708_2010

Sækja dagskrá sem PDF.

HR leggur áherslur á að taka vel á móti nemendum sem hefja nám við skólann. Á nýnemadögum er farið yfir mikilvæg atriði sem nýtast nemendum í náminu.  Kennt er meðal annars á kennslu- og upplýsingakerfi sem nemendur þurfa að nota meðan á námi stendur, þjónusta við nemendur kynnt og fjallað um lykilatriði til árangurs í háskólanámi.

Mjög mikilvægt er að allir nýnemar komi á nýnemadaga HR til þess að vera undirbúnir undir að hefja nám við skólann þegar kennsla hefst fimmtudaginn 19. ágúst.  Á nýnemadögum gefst einnig tækifæri á að kynnast lykilstarfsmönnum skólans og samnemendum.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica