Nýnemadagar: Grunnnám og frumgreinar (frh.)
Nýnemadagar fyrir nemendur sem eru að hefja grunnám og nám í frumgreinum við Háskólann í Reykjavík haustið 2010 verða haldnir dagana 17. og 18. ágúst í húsakynnum skólans í Nauthólsvík.
Miðvikudaginn 18. ágúst hefst dagskrá kl. 9:00 og lýkur með grillveislu í boði Stúdentafélags HR kl 12:30.
Fyrirliggjandi dagskrá:

ATH: Verk- og tæknifræðinemar sem taka Tölvustudda teikningu (AI TEI 1001) eiga mæta í stofu V1.02 kl. 13 - 15 vegna uppsetningar á AutoCad
HR leggur áherslur á að taka vel á móti nemendum sem hefja nám við skólann. Á nýnemadögum er farið yfir mikilvæg atriði sem nýtast nemendum í náminu. Kennt er meðal annars á kennslu- og upplýsingakerfi sem nemendur þurfa að nota meðan á námi stendur, þjónusta við nemendur kynnt og fjallað um lykilatriði til árangurs í háskólanámi.
Mjög mikilvægt er að allir nýnemar komi á nýnemadaga HR til þess að vera undirbúnir undir að hefja nám við skólann þegar kennsla hefst fimmtudaginn 19. ágúst. Á nýnemadögum gefst einnig tækifæri á að kynnast lykilstarfsmönnum skólans og samnemendum.

