Nýnemadagar: Háskólanám með vinnu
Kynning fyrir nýja nemendur í tölvunarfræði og viðskiptafræði sem eru að hefja háskólanám með vinnu (HMV) verður miðvikudagurinn 18. ágúst nk. í húsakynnum skólans, í Nauthólsvík, kl. 16:20-19:00.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 19. ágúst.
Fyrirliggjandi dagskrá (stofa M.1.07):
| 16:20 - 16:30 | Ari Kristinn Jónsson, rektor HR |
| 16:30 - 16:50 | Deildarforsetar og starfsmenn deilda |
| 16:50 - 17:10 | Tölvu- og kennslukerfi HR |
| 17:10 - 17:30 | Veitingar |
| 17:30 - 18:00 | Stúdentaþjónusta |
| 18:00 - 18:05 | Alþjóðasvið |
| 18:05 - 18:10 | Atvinnuþjónusta |
| 18:10 - 18:30 | Akademísk vinnubrögð og siðareglur |
| 18:30 - 18:50 | Bókasafn og upplýsingaþjónusta |
| 18:50 - 19:00 | Þjónustudeild |
HR leggur áherslur á að taka vel á móti nemendum sem hefja nám við skólann. Á nýnemadögum er farið yfir mikilvæg atriði sem nýtast nemendum í náminu. Kennt er meðal annars á kennslu- og upplýsingakerfi sem nemendur þurfa að nota meðan á námi stendur, þjónusta við nemendur kynnt og fjallað um lykilatriði til árangurs í háskólanámi.
Mjög mikilvægt er að allir nýnemar komi á nýnemadaga HR til þess að vera undirbúnir undir að hefja nám við skólann þegar kennsla hefst fimmtudaginn 19. ágúst. Á nýnemadögum gefst einnig tækifæri á að kynnast lykilstarfsmönnum skólans og samnemendum.

