Viðburðir HR - Heildarlisti

Haustfundur Innovit

1.9.2010

Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur, býður til haustfundar miðvikudaginn 1. september kl. 12:00 – 13:30 í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík.

Á fundinum verða haldin nokkur stutt og skemmtileg erindi þar sem fjallað verður um það sem efst er á baugi í nýsköpun í dag.

Dagskrá:

12:00: Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, flytur stutt ávarp.

12:10: Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Innovit, fjallar um frumkvöðlaumhverfið í Kísildalnum í Bandaríkjunum og samanburð við umhverfið á Íslandi.

12:30: Kristján Freyr Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Innovit, fjallar um niðurstöður meistararitgerðar sinnar sem bar yfirskriftina „Einkenni árangursríkra frumkvöðla“.

12:50: Andri Heiðar Kristinsson birtir nýsköpunarvísitölu Innovit í fyrsta sinn og kynnir viðburðarríkan vetur sem framundan er.

13:15: Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins flytur stutt ávarp og slítur fundi.

Fundarstjóri er Þórhildur Birgisdóttir, verkefnastjóri hjá Innovit.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins býður fundargestum upp á léttar veitingar.

Aðgangur ókeypis en vinsamlegast tilkynnið mætingu á skraning@innovit.is eða á Facebook.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica