Viðburðir HR - Heildarlisti

HR-Áskorunin

Hönnunarkeppni tækni- og verkfræðideildar fyrir framhaldsskólanema

18.2.2012

  • 18.2.2012

Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir hönnunarkeppninni, HR-Áskorunin. Keppt hefur verið árlega síðan 2010 og glímt er við nýja þraut hverju sinni. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þau lið sem standa sig best.

HR-Áskorunin 2012 felst í því að hanna og smíða vél sem flytur geisladisk frá upphafsstað til lokastaðar. Vélin fer í gegnum a.m.k. 20 aðgerðir og þarf geisladiskurinn að hafa viðkomu á a.m.k. tveimur öðrum stöðum en upphafi og endi.


Skráning fer fram rafrænt
og skila keppendur af sér myndskeiði og lýsingu á verkefninu á skráningarsíðu ekki seinna en 13. febrúar. Bestu lausnirnar komast í úrslitakeppni sem haldin verður á Háskóladeginum laugardaginn 18. febrúar 2012 í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík.

Nánari upplýsingar er að finna á vef HR-Áskoruninnar http://www.askorunin.is/.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica