Viðburðir HR - Heildarlisti

Framadagar Háskólanna

1.2.2012

  • 1.2.2012 11:00 - 16:00

Framadagar verða haldnir í Háskólanum í Reykjavík miðvikudaginn 1. febrúar 2012 frá kl. 11:00 til 16:00.

AIESEC alþjóðleg samtök háskólanema sér um framkvæmd Framadaganna  í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Á framadögum verða meðal annars kynningar á starfsemi fyrirtækja úr ólíkum áttum, kynnt verða möguleikar á lokaverkefnum innan fyrirtækja ásamt ýmsum öðrum uppákomum. Markmið Framadaga er að sem flestir háskólanemar, óháð skóla eða námsbraut, komist í samskipti við fyrirtæki, sjái hvaða menntun þau þurfi til þess að starfa hjá tilteknum fyrirtækjum og fái betri hugmynd að starfsmöguleikum eftir útskrift.

Ókeypis ferðir verða á  vegum Framadaga og Háskólans í Reykjavík og strætó mun ganga stöðugt á milli Háskóla Íslands (Aðalbyggingu) og Háskólans í Reykjavík (Sólarinnar) til að ferja nemendur á milli.

Dagskrá Framadaga Háskólanna.

Framadagar Háskólanna á Facebook.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica