Viðburðir HR

Skattadagur Lögréttu

  • 16.3.2013, 11:00 - 17:00

Lögfræðiþjónusta Lögréttu, félags laganema við Háskólann í Reykjavík,  veitir einstaklingum endurgjaldslausa ráðgjöf við gerð skattframtala fyrir skattskil 2012.

Ráðgjöfin verður veitt laugardaginn 16. mars nk. frá kl. 11:00-17:00 í húsnæði Háskólans í Reykjavík, Menntavegi 1 (Nauthólsvík), 101 Reykjavík og eru allir velkomnir.

Hvað þarf að hafa meðferðis?

  • Launamiða síðasta árs
  • Lykilorð og auðkennislykil til að komast inn í heimabanka
  • Veflykil inn á rsk.is
  • Gögn ef kaup og/eða sala á fasteign hafa átt sér stað á sl. ári
  • Gögn er varða kaup og/eða sölu og stöðu á verðbréfum í árslok

  Í samstarfi við KPMG, Arion banka og Mannréttindasvið Reykjavíkurborgar