Viðburðir HR

HR verðlaunin 2013

  • 20.3.2013
Taktu þátt í að tilnefna besta kennarann, besta rannsakandann eða besta þjónustuveitandann í HR.

Starfsfólki gefst kostur á að tilnefna þá sem þeir telja hafa skarað fram úr í kennslu, rannsóknum eða þjónustu.

Á Fyrirlestrarmaraþoni þann 20. mars verða eftirfarandi verðlaun afhent:

  • Kennsluverðlaun HR í samvinnu við Stúdentafélag HR
  • Rannsóknarverðlaun HR
  • Þjónustuverðlaun HR

Sérstök dómnefnd er skipuð fyrir hvern flokk en allir nemendur og starfólk HR geta tilnefnt til verðlaunanna

Til þess að dómnefndir geti tekið öll góð framlög til greina er afar mikilvægt að sem flestir taki þátt í tilnefningunni.   Fyrir verðlaunahafa er bæði heiður og verðlaunafé í boði.

Tilnefningar skal senda á netfangið: verdlaun@hr.is. Tilnefning skal vera skrifleg og fela í sér formlegan rökstuðning fyrir tilnefningunni, með vísan til þeirra viðmiða sem verðlaunin byggjast á.

Frestur til að skila tilnefningum er til 4. mars.