Kröfur um bóklegan undirbúning, umfram bóklegt nám til sveinsprófs eru 12 einingar til viðbótar í tungumálum (íslenska, enska og danska) og 12 einingar til viðbótar í raungreinum (stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði). Sérstakt undirbúningsnám er í boði í fjarnámi (stærðfræðigrunnur, raungreinagrunnur og tungumálagrunnur I og II / enska og íslenska) og er það aðgengilegasta leiðin fyrir flesta til að ljúka undirbúningsnámi samhliða iðnfræði.
Þeir sem hafa lokið meistaranámi í iðngrein eða stúdentsprófi uppfylla kröfur um bóklegan undirbúning og geta hafið nám í iðnfræði án frekari undirbúnings.
Einnig er hægt að taka aðra önn (F2) hjá FrumgreinaMennt HR, sem telst fullnægjandi undirbúningsnám. Hér má finna upplýsingar um skólagjöld.
Fylgiskjöl með umsókn í iðnfræði:
- Námsferill
- Sveinsbréf eða meistarabréf
- Starfsferill, etv. meðmæli

