Nýr dómssalur

Lögfræði - Verkefnatengt laganám

  • Markviss þjálfun í beitingu lögfræðilegrar aðferðarfræði
  • Fullbúinn dómsalur
  • Víðtækt námsmat í formi miðannarprófa og raunhæfra  verkefna
  • Takmarkaður nemendafjöldi
  • Mikil áhersla á gæði kennslu
  • Leshópar fyrir nýnema



Grunnnám

BA í lögfræði samanstendur af 165  einingum í kjarnanámi og 15 einingum í vali. Námið, kennslan og námsmatið er verkefnatengt.

Meistaranám

ML í lögfræði er rannsóknartengt 120  eininga nám sem samanstendur af kjörgreinum og málstofum

Doktorsnám

Doktorsnám er fullt nám í þrjú ár og svarar til 180 ECTS eininga.  Gert er ráð fyrir því að námstíminn vari í fjögur ár ef nemandi sinnir kennslu eða öðrum störfum með náminu.


Fréttir

17.1.2012 : Forsetalisti lagadeildar hefur verið birtur

Forsetalisti lagadeildar vegna framúrskarandi  námsárangurs haustið 2011 hefur verið birtur á heimasíðu lagadeildar. Þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista lagadeildar og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld.
Lesa meira
 

13.11.2011 : Með velferð og vellíðan barna að leiðarljósi 

Viðtal við Svölu Ísfeld Ólafsdóttur í Morgunblaðinu sunnudaginn 13. nóvember 2011

Lesa meira
 

6.10.2011 : Ný bók:  Hinn launhelgi glæpur

Út er komin bókin Hinn launhelgi glæpur. Hún er framlag til umræðu um kynferðisbrot gegn börnum og skerfur til frekari skilnings á orsökum þeirra og afleiðingum.

Lesa meira
 

25.2.2011 : Héraðsdómur Reykjavík í HR?

Dómurum við Héraðsdóm Reykjavíkur líst vel á hugmyndir um að málflutningur verði tekinn upp í dómsal HR. Lesa meira
 

5.1.2011 : Lánsamur laganemi

Málskotsnefnd LÍN hefur úrskurðað að laganemi við HR skuli fá námslán til að ljúka grunnnámi í lögfræði eftir að hafa fyrst lokið meistaragráðu í lögfræði við HR. Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) hafði áður synjað viðkomandi nema um lán.

Lesa meira
 

6.5.2009 : Laganemi við HR vinnur til alþjóðlegra verðlauna

Ása Sigríður Hallsdóttir, meistaranemi við lagadeild HR og skiptinemi við háskólann í Stokkhólmi, tók þátt í alþjóðlegri málflutningskeppni á sviði Evrópuréttar fyrir hönd Stokkhólmsháskóla í lok apríl. Keppnin ber nafnið European Law Moot Court Competition og hefur verið haldin árlega sl. 20 ár. Um 90 lið senda inn skriflega lausn á því máli sem keppnin hefur lagt fyrir og er 46 liðum í framhaldinu boðið að taka þátt í Regional Finals, sem er munnlegi hluti keppninnar Lesa meira
 

20.3.2009 : Laganemar bjóða ókeypis aðstoð við skattframtalið laugardaginn 21. mars í HR

Talið fram í tólf tíma Laganemar í Háskólanum í Reykjavík bjóða öllum sem vilja aðstoð við skattframtalið næsta laugardag 21.mars kl. 09:00 - 21:00 í stofu 235 - 2.hæð Lesa meira
 

27.2.2009 : Samfélagsábyrgð: Frá sýn til framkvæmdar

Eþikos og Útflutningsráð bjóða upp á námskeið um innleiðingu samfélagsábyrgðar sem lið í því að byggja upp traust, orðstír og ábyrga samkeppnishæfni. Þessar áherslur hafa aldrei verið mikilvægari en nú. Námskeiðið verður haldið frá kl. 09.00-17.00 í Háskólanum í Reykjavík Lesa meira
 

25.9.2008 : Upptaka í sátt erfið án aðildar. Grein birt í MBL. 24.9.2008

Aðildarríki ESB eru bundin af Stofnsáttmála Evrópubandalagsins [Rómarsáttmálinn e. EC-treaty] sem er grunnur þess regluverks sem ESB er reist á. " Aðildarríkin þurftu að færa miklar fórnir til þess að taka upp evruna. Hvernig á að útskýra einhliða upptöku evru hér fyrir íbúum í Róm eða Madríd, sem lögðu mikið á sig til að taka gjaldmiðilinn upp?" sagði Peter Dyrberg. Lesa meira
 

25.6.2008 : EÞIKOS -Verkefnafulltrúi óskast

Eþikos, miðstöð Íslands um samfélagsábyrgð fyrirtækja, leitar að öflugum og metnaðarfullum aðila í starf verkefnafulltrúa. Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í að byggja upp nýja miðstöð innan Háskólans í Reykjavík sem vinnur að því að auka þekkingu á samfélagsábyrgð fyrirtækja hér á landi og efla fyrirtæki á því sviði. Lesa meira
 

28.5.2008 : Rannsóknarverkefni á sviði höfundaréttar - haustönn 2008

Rán Tryggvadóttir, dósent við lagadeild, óskar eftir umsóknum frá nemendum um að vinna að sérstöku rannsóknarverkefni, sbr. 9. mgr. 13. gr. reglna um meistaranám við lagadeild HR. Lesa meira
 

7.5.2008 : Meistaranemi óskast í rannsóknir

Auglýst er eftir meistaranema í lögfræði til að starfa við rannsóknina: „Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði – lagaumgjörð stjórnsýslu og réttarverndar þátttakenda“. Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor. Um er að ræða hlutastarf með námi eftir nánara samkomulagi og er áætlaður starfstími frá 1. september 2008 til 1. júní 2009. Lesa meira
 

9.4.2008 : Auðlindaréttarstofnun sumarstörf

Auðlindaréttarstofnun auglýsir laus til umsóknar 1-2 sumarstörf við verkefni fyrir Orkustofnun sem stofnunin vinnur að í samvinnu við Þróunarstofnun Íslands. Heiti verkefnisins er: „ Leiðbeiningar og viðmið vegna eftirlits með rannsóknum og nýtingu á jarðhitaauðlindum í Nicaragua vegna jarðhitaverkefnis Þróunarstofnunar Íslands.“ Lesa meira
 

17.3.2008 : Tímarit Lögréttu er komið út.

Út er komið 1. hefti, 5. árg., Tímarits Lögréttu. Tímaritið er fræðirit á sviði lögfræði og gefið út af Lögréttu félagi laganema við HR. Ritstjóri tímaritsins er Gunnar Örn Petersen. Lesa meira
 

23.1.2008 : Réttarsöguferð meistaranema til Þingvalla

Nemendur og kennarar í réttarsögu héldu í fræðslu- og kynningarferð til Þingvalla á föstudaginn var. Náttúran skartaði sínu fegursta; hvít snjóbreiðan kallaðist á við svarta veggi Almannagjár og kyrrðin var aðeins rofin af þramminu Lesa meira
 

7.12.2007 : Nýir samstarfssamningar við erlenda háskóla.

Lagadeild HR hefur gert samstarfssamninga um stúdentaskipti við Háskólann í Ottawa í Kanada, Leiden í Hollandi og Carlos III á Spáni. Lesa meira
 

4.12.2007 : Meistaranemar óskast: Rannsóknarverkefni um alþjóðadómstóla Vorönn 2008

Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild, óskar eftir umsóknum frá nemendum um að vinna að sérstöku rannsóknarverkefni, sbr. 9. mgr. 13. gr. reglna um meistaranám við lagadeild HR. Lesa meira
 

25.10.2007 : Lagadeild HR og Kaupþing banki hf. undirrita samstarfssamning

Skrifað hefur verið undir starfsnámssamning fyrir nemendur á milli lagadeildar HR og Kaupþings banka. Þetta er 17. samningur lagadeildar við stofnanir og fyrirtæki um starfsnám fyrir nemendur sem þeir fá metið til eininga í meistaranámi. Lesa meira
 

9.10.2007 : Út er komið 3. hefti, 4. árg. Tímarits Lögréttu

Tímaritið er fræðirit á sviði lögfræði og gefið út af Lögréttu, félagi laganema við HR. Ritstjóri þessa heftis er Halldór Brynjar Halldórsson en Gunnar Örn Petersen hefur nú tekið við ritstjórn tímaritsins. Lesa meira
 

9.10.2007 : Fræðafundur um hópmálsókn

Í hádeginu í dag var haldinn fundur þar sem Gísli Tryggvason talsmaður neytenda fjallaði um hópmálsókn (e. class action) sem réttarfarsúrræði. Rökstuddi Gísli með íslenskum dæmum og erlendum fyrirmyndum hvers vegna hann telur nauðsynlegt að leiða slíkt réttarfarsúrræði í íslensk lög. M.a. kynnti hann tævr meginleiðir til þess að standa að hópmálsókn þ.e. "opt-in" og "opt-out". Lesa meira
 

22.8.2007 : Til hamingju með afmælið lagadeild HR!

Lagadeild HR er 5 ára í dag. Lagadeildin hefur vaxið og eflst með ótrúlegum hraða á þessum 5 árum. Á fyrsta ári hennar stundaði 81 nemandi nám við lagadeild, en í dag eru 365 nemendur skráðir í deildina. Lesa meira
 

21.8.2007 : Lagadeild HR 5 ára

 

19.6.2007 : Auðlindaréttarstofnun óskar eftir meistaranema

Auðlindaréttarstofnun tekur þátt í þverfaglegri rannsókn um gerð reglna um losun gróðurhúsalofttegunda og áhrif þeirra með aðstoð gervigreindarhermunar. Auglýst er eftir laganema af fyrsta eða öðru ári í mastersnámi til að vinna að undirbúningi að gerð lagalegrar sviðsmyndar, þ.e. hvaða kostir eru fyrir hendi varðandi lög og reglur um losun gróðurhúsalofttegunda. Lesa meira
 

14.6.2007 : Forðast leiðandi spurningar

"ÞAÐ er svo margt sem getur farið úrskeiðis við skýrslutökur af börnum þannig að þær séu ekki teknar gildar fyrir dómi, eins og nýleg dæmi sýna," segir Kolbrún Birna Árdal. Viðtal birt í MBL 13.6.2007 Lesa meira
 

11.6.2007 : Ráðstefna við HR hlýtur veglegan styrk

Í haust verður haldin alþjóðleg ráðstefna í HR undir heitinu 'The Human Rights of Persons with Disabilities - from Social Policy to Equal Rights'. Ráðstefnan hefur hlotið veglegan styrk úr sjóðum Evrópusambandsins vegna evrópuárs jafnra tækifæra 2007. Lesa meira
 

8.6.2007 : Lagadeild Háskólans í Reykjavík útskrifar fyrstu nemendurna með fullnaðarpróf í lögfræði

Í dag verða merk tímamót í sögu lagamenntunar á Íslandi, en þá útskrifar Háskólinn í Reykjavík fyrstu lögfræðingana með fullnaðarpróf í lögfræði eftir 5 ára háskólanám. Með þessum áfanga er brotið blað í þessari sögu, enda hefur Háskóli Íslands frá stofnun hans 1911 (Lagaskólinn frá 1908) einn sinnt menntun lögfræðinga í landinu. Lesa meira
 

4.6.2007 : Lögfræðinám fært til nútímans

Háskólinn í Reykjavík útskrifar nú í fyrsta skipti lögfræðinga með fullnaðarpróf í lögum. Áttatíu og einn nemandi hóf nám við lagadeildina þegar hún var stofnuð fyrir fimm árum, fjörutíu og tveir útskrifast 9. júní. Salvar Þór Sigurðarson ræddi við Þórð S. Gunnarsson, forseta lagadeildar, um nútímalegri lögfræðimenntun og Dýrin í Hálsaskógi sem kennslutæki. Lesa meira
 

29.5.2007 : Tímarit Lögréttu er komið út

Út er komið 2. hefti 4. árgangs Tímarits Lögréttu. Tímaritið er fræðirit á sviði lögfræði og gefið út af Lögréttu, félagi laganema við HR. Ritstjóri þessa heftis er Halldór Brynjar Halldórsson. Í heftinu að þessu sinni má finna þrjár fræðigreinar á sviði lögfræði, allar ritrýndar. Lesa meira
 

18.5.2007 : Skrárðar afleiður. Hádegisfundur Fjármálaréttarstofnunar HR mánudaginn 21. maí nk.

Fjármálaréttarstofnun HR, í samstarfi við OMX Nordic Exchange á Íslandi, býður til hádegisfundar mánudaginn 21. maí n.k kl. 12:00-13:00 í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2. Ókeypis aðgangur. Lesa meira
 

18.5.2007 : Söguleg tímamót lagadeildar HR

1. Á tímamótum Háskólinn í Reykjavík (HR) stendur á tímamótum, þar í fyrsta skipti verða útskrifaðir lögfræðingar með fullnaðarpróf í lögum. Í ágúst fyrir tæpum fimm árum hófu 81 nemandi nám við hina nýju lagadeild. Hópurinn hefur minnkað eftir því sem á líður og nú eru 42 nemendur að útskrifast 9. júní n.k. Af tilefni þeirra tímamóta sem að ofan er lýst langar mig aðeins til að lýsa minni upplifun á síðastliðnum fimm árum og hvernig það hefur verið að stunda laganám við Háskólann í Reykjavík. Lesa meira
 

18.5.2007 : Nýtt námskeið í meistaranámi á vorönn 2008: Business and Economic Law in China

Á vorönn 2008 verður boðið verð upp á námskeiðið Business and Economic Law in China. Kennari á námskeiðinu verður Dr. Teemu Ruskola, Washington College of Law. Lesa meira
 

26.4.2007 : Dreifing kvikmynda og tónlistar á netinu

Í tilefni af alþjóðahugverkadeginum sem haldinn er 26. apríl ár hvert bauð lagadeild HR til málfundar í dag. Að þessu sinni var umræðuefnið skráarskiptakerfi og álitaefnið hvort dreifing tónlistar og kvikmynda sem þar fer fram samrýmist höfundarétti. Það voru fjörugar umræður og sýndist sitt hverjum. Lesa meira
 

25.4.2007 : Olíuleit við Ísland - Auðlindin og lagaramminn. Hádegisfundur 30. apríl s.l.

Auðlindaréttarstofnun HR og iðnaðarráðuneytið buðu til hádegisfundar mánudaginn 30. apríl nl í Háskólanum í Reykjavík, í tilefni af skýrslu iðnaðarráðuneytisins um hugsanlega útgáfu sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæði við Jan Mayen hrygginn. Lesa meira
 

17.4.2007 : Dreifing kvikmynda og tónlistar á netinu. Istorrent, SMÁÍS og höfundaréttur

Í tilefni af alþjóðahugverkadeginum sem haldinn er 26. apríl ár hvert hefur lagadeild HR ákveðið að boða til málfundar fimmtudaginn 26. apríl nk. Að þessu sinni verður umræðuefnið skráarskiptakerfi og álitaefnið hvort dreifing tónlistar og kvikmynda sem þar fer fram samrýmist höfundarétti. Lesa meira
 

16.4.2007 : Lögrétta, félag laganema HR hefur verið tilnefnt til Íslensku forvarnarverðlaunanna 2007

Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, hefur verið tilnefnt til Íslensku forvarnaverðlaunanna 2007 vegna lögfræðiaðstoðar við útlendinga, en félagið veitir innflytjendum og fólki af erlendum uppruna ókeypis lögfræðiaðstoð. Lesa meira
 

14.3.2007 : Húsfyllir á hádegisfundi um auðlindaákvæðið

Fullt var út úr dyrum á hádegisfundi lagadeildar HR í hádeginu í dag. Umræðuefnið var 'Auðlindaákvæði í stjórnarskrá' og tilefnið frumvarp um að sett skuli í stjórnarskrá Íslands ákvæði um að auðlindir landsins skuli vera sameign þjóðarinnar. Lesa meira
 

14.2.2007 : Bestu nemendur HR heiðraðir

Forsetalistaathöfn HR fór fram í dag, en þá var 59 nemendum veitt viðurkenning fyrir frábæran námsárangur. Þessi árangur felur í sér að þessir nemendur fá felld niður skólagjöld á þessari önn. Straumur Burðarás greiðir skólagjöld þessara nema og hefur félagið styrkt bestu nemendur skólans um langt árabil. Lesa meira
 

30.1.2007 : Nýtt hefti tímarits Lögréttu er komið út

Tímaritið Lögrétta, 1. hefti, 4. árg. er komið út, en það er gefið út af Lögréttu, félagi laganema við HR. Á meðal efnis er grein sem ber yfirskriftina Breytt íslensk lögfræði og eins er fjallað um norrænt lagasamstarf í ritinu. Lesa meira
 

25.1.2007 : Wilson Muuga - Hver á að borga?

Lögrétta, félag laganema og lagadeild Háskólans í Reykjavík héldu hádegisfund í dag þar sem dr.juris Guðmundur Sigurðsson, prófessor við lagadeild HR, fjallaði um hver eigi að bera kostnaðinn vegna strands skipsins Wilson Muuga í lok síðasta árs. Lesa meira
 

23.11.2006 : Dósent við HR skipaður formaður höfundaréttarnefndar

Rán Tryggvadóttir, dósent við lagadeild HR, hefur verið skipuð formaður höfundaréttarnefndar. Rán tekur við formennsku nefndarinnar af Gunnari Jóhanni Birgissyni, og er hún skipuð formaður til 28. febrúar 2010. Lesa meira
 

21.11.2006 : Ný bók sem skoðar áhrif EES-samningsins á íslenskan landsrétt

Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, hefur sent frá sér ritið EES-réttur og landsréttur. Í ritinu eru áhrif EES-samningsins á íslenskan landsrétt skoðuð út frá hefðbundnum sjónarmiðum um tengsl þjóðaréttar og landsréttar, auk þess sem leitast er við að svara spurningum um þær skorður sem stjórnarskrá Íslands kann að setja íslenska ríkinu í alþjóðlegu samstarfi af þessu tagi. Lesa meira
 

13.11.2006 : Skýrsla þriggja kennara við HR birt í skýrslu Evrópusambandsins

Evrópusambandið hefur birt skýrslu um gildi rafrænna skjala á Íslandi sem þrír kennarar við lagadeild Háskólans í Reykjavík; Rán Tryggvadóttir dósent, Haraldur Flosi Tryggvason og Jón Vilberg Guðjónsson, unnu sl. sumar. Lesa meira
 

10.11.2006 : Auðlindaréttarstofnun opnar heimasíðu

Auðlindaréttarstofnun hefur opnað heimasíðu á slóðinni www.audlindarettarstofnun.is . Á heimasíðunni má m.a. finna tengla á auðlindaréttarlöggjöf, stofnanir og fyrirtæki sem tengjast auðlindarétti, álitsgerðir og fleira. Formaður stofnunarinnar er Dr. juris Guðrún Gauksdóttir dósent. Lesa meira
 

9.11.2006 : Auðlindaréttarstofnun opnar heimasíðu

Auðlindaréttarstofnun opnaði í dag heimasíðu. Á heimasíðunni má m.a. finna tengla á auðlindaréttarlöggjöf, stofnanir og fyrirtæki sem tengjast auðlindarétti og annað sem tengist auðlindarétti. Formaður stofnunarinnar er Dr. juris Guðrún Gauksdóttir dósent en aðrir í stjórn eru: Margrét Vala Kristjánsdóttir lektor við lagadeild HR, Þórður Bogason hdl., Elín Smáradóttir lögfræðingur og Ágúst Valfells lektor við Tækni- og verkfræðideild HR og forstöðumaður Orkurannsóknarseturs HR. Allar frekari upplýsingar eru á heimasíðu stofunarinnar: Audlindarettarstofnun.is Lesa meira
 

7.11.2006 : Nemendaskiptasamningur við Háskólann í Jóhannesarborg

Í gær var skrifað undir samstarfssamning um nemendaskipti á milli lagadeildar Háskólans í Reykjavík og Háskólans í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Háskólinn í Reykjavík er í samstarfi við yfir 100 erlenda háskóla. Lesa meira
 

3.11.2006 : Ráðstefna um tjáningarfrelsi

Alþjóðleg ráðstefna um tjáningarfrelsi stendur yfir í Háskólanum í Reykjavík. Fjöldi erlendra gesta hefur sótt ráðstefnuna heim og hefur verið boðið upp á fjölda áhugaverðra fyrirlestra sem erlendir og innlendir fræðimenn hafa flutt. Lesa meira
 

1.11.2006 : Atvinnuþjónusta Háskólans í Reykjavík nær nú til alls skólans

Háskólinn í Reykjavík hefur komið á fót Atvinnuþjónustu, sem nú nær til alls skólans. Hlutverk Atvinnuþjónustunnar er að greiða fyrir árangursríkum ráðningum útskrifaðra nemenda í störf í fyrirtækjum og stofnunum, og styrkja þannig tengsl skólans við atvinnulífið. Lesa meira
 

20.10.2006 : Straumur-Burðarás greiðir skólagjöld fyrir alla nemendur á Forsetalista HR

Bestu nemendur Háskólans í Reykjavík, 65 talsins, voru í dag heiðraðir við hátíðlega athöfn í skólanum. Þessir nemendur komast þar með á Forsetalista HR, sem þýðir að þeir fá felld niður skólagjöld á yfirstandandi önn. Við athöfnina var skrifað undir 3ja ára samning við Straum-Burðarás, sem felur í sér að félagið greiðir skólagjöld allra bestu nemenda HR á næstu þremur árum. Lesa meira
 

10.10.2006 : 60 gestir á fundi um skattareglur á evrópska efnahagssvæðinu

Um 60 manns sóttu hádegisverðarfund Evrópuréttarstofnunar HR í dag. Á fundinum flutti Peter Christian Dyrberg forstöðumaður Evrópuréttarstofnunar HR erindi um áhrif evrópska efnahagssvæðisins á innlenda skattalöggjöf. Lesa meira
 

22.9.2006 : 150 manns á ráðstefnu lagadeildar HR

Um 150 manns sátu ráðstefnu lagadeildar HR sem haldin var fimmtudaginn 21. september. Yfirskrift ráðstefnunnar var "Bótaréttur vegna vinnuslysa". Þar voru flutt 6 erindi og að þeim loknum voru pallborðsumræður. Lesa meira
 

21.9.2006 : Bótaréttur vegna vinnuslysa

Þann 21. september n.k. verður í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti haldin ráðstefna um bótarétt vegna vinnuslysa. Ráðstefnan verður haldin í stofu 131 og hefst hún kl. 12:00. Lesa meira
 

7.9.2006 : HR og Umhverfisráðuneytið undirrita samstarfssamning

Skrifað hefur verið undir starfsnámssamning fyrir nemendur á milli lagadeildar HR og Umhverfisráðuneytisins. Þetta er 14. samningur lagadeildar við stofnanir og fyrirtæki um starfsnám fyrir nemendur sem þeir fá metið til eininga. Lesa meira
 

5.9.2006 : Fjölmennur fundur lagadeildar HR um réttarstöðu mótmælenda

Tekist var á um réttarstöðu mótmælenda á fjölmennum hádegisverðarfundi lagadeildar HR sem haldinn var í dag. Frummælendur voru Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgar-svæðisins og Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður. Fjörlegar umræður spruttu í kjölfar framsöguerinda. Lesa meira
 

30.8.2006 : Fræðafundir og ráðstefnur lagadeildar haustið 2006 í samstarfi við LMFÍ

Lagadeild HR stendur fyrir hádegisfundum fyrsta þriðjudag í mánuði haustið 2006. Fyrsti hádegisfundurinn verður haldinn 5. september kl. 12:00 og er efni fundarins: Réttarstaða mótmælenda. Lesa meira
 

19.6.2006 : HR og Samkeppniseftirlitið undirrita samstarfssamning

Skrifað hefur verið undir starfsnámssamning fyrir nemendur á milli lagadeildar HR og Samkeppniseftirlitsins. Þettta er 13. samningur lagadeildar við stofnanir og fyrirtæki um starfsnám fyrir nemendur í meistaranámi sem þeir fá metið til eininga. Lesa meira
 

12.6.2006 : "Lögfræðin er alls ekki eins sérstök og af er látið"

Ragnhildur Helgadóttir tók nýverið við stöðu prófessors í stjórnskipunarrétti við HR. Árni Helgason ræddi við hana um hvað væri á döfinni, um breytingar á stjórnarskránni og hvort íslensk lögfræði ætti erindi við aðrar þjóðir. Lesa meira
 

29.5.2006 : Fyrst og fremst í Evrópurétti

Davíð Ingi fjallar í þessari grein um áherslur lagadeildar HR á kennslu í Evrópurétti. Hann vekur athygli á því að innan lagadeildar HR er að finna Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík sem er eina rannsóknarstofnunin innan íslensks háskólasamfélags sem sérhæfir sig í rannsóknum á Evrópurétti. Hann telur að lögfræðingar sem útskrifist úr lagadeild HR hafi alla burði til að skipa sér í fremstu röð á sviði Evrópuréttar. Lesa meira
 

23.5.2006 : ESA - varðhundur EES-réttar!

Í dag hélt Niels Fenger yfirmaður lögfræðideildar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) erindi á vegum Evrópuréttar-stofnunar Háskólans í Reykjavík í samstarfi við Glitni. Erindið bar heitið "ESA - What Makes the Watchdog Bark?". Fenger fjallaði m.a. um hvað ræður því að ESA tekur mál til skoðunar og hvernig hægt er að hafa áhrif á framgang mála. Lesa meira
 

22.5.2006 : Stefna lagadeildar í rannsóknum og kennslu

Á deildarfundi í lagadeild HR sem haldinn var 17. maí 2006 var stefna deildarinnar í rannsóknum 2006-2008 samþykkt. Á sama fundi var stefna lagadeildar í kennslumálum samþykkt en hún felur m.a. í sér ítarleg viðmið um kennsluhætti. Lesa meira
 

22.5.2006 : Hagnýtt laganám á 21. öld

Jóhannes Sigurðsson fjallar um laganám við HR: "Eins og glöggt má sjá eru viðfangsefni þessa verkefnis í beinum tengslum við íslenskan veruleika, sem gerir lögfræðina miklum mun meira spennandi en ella." Lesa meira
 

16.5.2006 : Laganemar við HR stunda nám í Japan

Fimm laganemar frá HR stunda nú nám við lagadeild Kyushu háskóla í Fukuoka í Japan. Hann er einn af virtustu háskólum Japans, en nemendur við skólann eru um 16.500, þar af um 900 erlendir nemar frá 60 löndum. Lagadeild Kyushu háskóla var fyrst japanskra lagadeilda til að bjóða upp á meistaranám sem eingöngu er kennt á ensku. Gert er ráð fyrir að tveir japanskir laganemar komi til náms við lagadeild HR næsta haust. Lesa meira
 

25.4.2006 : Nýr prófessor við lagadeild HR

Dr. Ragnhildur Helgadóttir hefur fengið framgang í stöðu prófessors við lagadeild HR að undangengnu matsnefndaráliti. Ragnhildur er fædd þann 30. apríl 1972. Hún lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1997. Hún starfaði hjá Umboðsmanni alþingis 1997-1998 og stundaði meistaranám við lagadeild Virginiuháskóla 1998-1999 og lauk doktorsprófi frá sama skóla árið 2004. Veturinn 2004-2005 var hún gestakennari við lagadeild Université de Montréal. Lesa meira
 

24.4.2006 : Dómar í verðbréfamarkaðsrétti 1980-2005

Út er komið ritið "Dómar í verðbréfamarkaðsrétti 1980 til 2005" eftir Jóhannes Sigurðsson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Lesa meira
 

7.4.2006 : Lagadeild HR tekur þátt í alþjóðlegri gerðardómskeppni

Keppnislið lagadeildar Háskólans í Reykjavík, skipað sjö meistaranemum, hélt til Vínarborgar í vikunni til þátttöku í alþjóðlegri gerðardómskeppni sem ber nafnið Willem C. Vis International Commercial Arbitration Moot. Lesa meira
 

31.3.2006 : Tímarit Lögréttu er komið út

Út er komið 1. hefti, 3. árg., Tímarits Lögréttu. Tímaritið er fræðirit á sviði lögfræði og gefið út af Lögréttu félagi laganema við HR. Ritstjóri tímaritsins er Björn Þorlákur Björnsson. Lesa meira
 

22.3.2006 : Einn helsti sérfræðingur Dana í upplýsingatæknirétti er gestur HR þessa vikuna

Dr. Mads Bryde Andersen sem er prófessor við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla mun vera gestur lagadeildar HR næstu daga og verður meðal annars með gestafyrirlestra fyrir nemendur. Lesa meira
 

17.3.2006 : Hvenær er lán lán? Hádegisfundur í Háskólanum í Reykjavík í tilefni nýfallins dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í "Baugsmálinu".

Laga- og viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík standa fyrir hádegisfundi mánudaginn 20. mars 2006 kl. 11:50 - 13:00 í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, undir yfirskriftinni: Hvenær er lán lán? Tilefni: Nýfallinn dómur héraðsdóms Reykjavíkur í "Baugsmálinu". Lesa meira
 

24.2.2006 : Mannréttindasáttmáli Evrópu - Meginreglur, framkvæmd og áhrif á íslenskan rétt er komin út

Ritið er gefið út af Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og lagadeild Háskólans í Reykjavík. Er þetta fyrsta heildstæða fræðiritið sem kemur út á íslensku um Mannréttindasáttmála Evrópu, dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og áhrif sáttmálans á íslenskan rétt, einkum eftir lögfestingu hans hér á landi árið 1994. Lesa meira
 

10.2.2006 : Samruni félaga yfir landamæri - nýir möguleikar á Evrópska efnahagssvæðinu

Lagadeild HR og Lögfræðingafélag Íslands standa fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 14. febrúar 2006 kl. 08:15-09:30 í Sunnusal Hótel Sögu þar sem prófessor Søren Friis Hansen ph.d. prófessor við Syddansk Universitet flytur erindi um samruna félaga yfir landamæri. Lesa meira
 

8.2.2006 : Námsferð laga- og viðskiptadeilda HR til Brussel í febrúar 2006

Nemendur úr viðskiptadeild og lagadeild HR voru í dag í heimsókn í ráðherraráði ESB í Brussel. Heimsóknin er hluti af 3ja daga námsferð þar sem allar helstu stofnanir ESB, EFTA og fastanefnd Íslands í Brussel eru sóttar heim. Lesa meira
 

6.2.2006 : Afburðanemendur á forsetalistum HR heiðraðir

68 nemendur við Háskólann í Reykjavík á föstudaginn 3. febrúar, viðurkenningarskjal fyrir framúrskarandi námsárangur við skólann á síðustu önn. Þessa önn fóru 11 nemendur lagadeildar á forsetalista, 22 nemendur viðskiptadeildar, 34 nemendur í tækni- og verkfræðideild og einn nemandi úr kennslufræði- og lýðheilsudeild. Lesa meira
 

4.1.2006 : Jóhannes Sigurðsson ráðinn aðstoðarforstjóri Milestone ehf

Jóhannes Sigurðsson prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Milestone ehf. og hóf hann störf hjá Milestone ehf. í byrjun ársins. Mun hann einnig sinna verkefnum fyrir dótturfélög og önnur félög tengd samstæðunni. Lesa meira
 

29.12.2005 : Nýr prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík

Dr. Oddný Mjöll Arnardóttir, hdl., hefur verið ráðin prófessor við lagadeild HR frá og með 1. janúar 2006. Lesa meira
 

22.12.2005 : Úr gagnasafni MBL. Ragnhildur Helgadóttir ritstýrir sögu þingræðis

Ritstjórn um sögu þingræðis á Íslandi kom saman í gær og skipti með sér verkum. Formaður ritstjórnar verður dr. Ragnhildur Helgadóttir, lektor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík. Auk hennar skipa ritstjórnina Helgi Skúli Kjartansson, prófessor í sagnfræði við Kennaraháskóla Íslands og dr. Þorsteinn Magnússon stjórnmálafræðingur, forstöðumaður á skrifstofu Alþingis. Lesa meira
 

20.12.2005 : Bókin "The Influence of American Theories on Judicial Review in Nordic Constitutional Law" eftir Ragnhildi Helgadóttur er komin út

Bókin fjallar um áhrif bandarískra hugmynda á norrænan stjórnskipunarrétt, sérstaklega að því er snertir úrskurðarvald dómstóla um stjórnskipulegt gildi laga Lesa meira
 

14.12.2005 : Ný bók um mannréttindi: Mannréttindasáttmáli Evrópu, meginreglur, framkvæmd og áhrif á íslenskan rétt

Hér er um að ræða umfangsmikið samstarfsverkefni þar sem fræðimenn lagadeilda Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík leggja saman krafta sína auk annarra sérfræðinga um mannréttindi en höfundar efnis í ritinu eru alls tólf talsins. Ritstjórn annast Björg Thorarensen, Davíð Þór Björgvinsson, Guðrún Gauksdóttir og Hjördís Björk Hákonardóttir Lesa meira
 

13.12.2005 : Laganemar við HR komast í 12 liða úrslit í Nýsköpun 2005

Verkefni meistaranemanna: Andra Gunnarssonar og Jóhanns Leví komst í hóp 12 verkefna sem koma til álita í Nýsköpun 2005 - samkeppni um viðskiptaáætlanir. Í viðskiptaáætluninni "EAST INVESTMENT" settu þeir fram hugmyndir um stofnun, umfang, rekstur og fjármögnun fjárfestingafélags í Búlgaríu. Lesa meira
 

9.12.2005 : Nýr prófessor við lagadeild HR

Dr. juris Guðmundur Sigurðsson hefur í dag fengið framgang í stöðu prófessors við lagadeild HR að undangengnu matsnefndaráliti. Lesa meira
 

7.12.2005 : Meistaranemar í lögfræði við lagadeild HR taka þátt í Willem C. Vis International Arbitration Moot málflutningskeppninni

Átta laganemar í meistaranámi við lagadeild HR taka þátt í málflutningskeppninni Willem C. Vis International Arbitration Moot sem haldin verður í Vínarborg 6.-13. apríl 2006. Lesa meira
 

29.11.2005 : Endurskoðun stjórnarskrár og dómsvaldið. Hádegisfundur á fullveldisdaginn 1. desember 2005

Lagadeild Háskólans í Reykjavík og stjórnarskrárnefnd standa fyrir hádegisfundi á fullveldisdaginn, fimmtudaginn 1. desember 2005 kl. 12:00-13:30 á þriðju hæð í Háskólanum í Reykjavík. Lesa meira
 

17.10.2005 : Dómstólavæðingin. Málstofa um mannréttindi, dómsvald og stjórnmálavald fimmtudaginn 20. október 2005 kl. 16:00-18:00

Málstofa um mannréttindi, dómsvald og stjórnmálavald verður haldin á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og Lagadeildar HR fimmtudaginn 20. október nk. kl. 16:00-18:00 í stofu 101. Lesa meira
 

13.10.2005 : Ráðstefna um yfirtökur skráðra félaga og starfsemi yfirtökunefnda 21. október kl. 13:00

Bresk-íslenska viðskiptaráðið, Yfirtökunefnd, Fjármálaréttarstofnun Háskólans í Reykjavík og Viðskiptaráð Íslands boða til ráðstefnu Lesa meira
 

11.10.2005 : Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna - málfundur á vegum Lögréttu 12. október kl. 12:15

Málfundafélag Lögréttu boðar til málfundar miðvikudaginn 12. október kl. 12:15 í Háskólanum í Reykjavík, í fundarsal 231b. Framsögumenn: Bjarni Benediktsson, alþingismaður, Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Lesa meira
 

23.9.2005 : Stúdentar á forsetalista heiðraðir

Í dag fengu 49 nemendur við Háskólann í Reykjavík viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur og fá þeir niðurfelld skólagjöld. Straumur Fjárfestingabanki styrkir nemendur sem eru á forsetalista viðskiptadeildar. Lesa meira
 

12.9.2005 : Tengsl kaup- og farmsamninga - Incoterms. Fyrirlestur á vegum lagadeildar með prófessor Jan Ramberg frá Háskólanum í Stokkhólmi.

Föstudaginn 16. september mun Jan Ramberg fyrrverandi prófessor við Háskólann í Stokkhólmi halda fyrirlestur í tengslum við námskeiðin Alþjóðleg lausafjárkaup og Sjó - og flutningarétt sem kennd eru í meistaranámi í lagadeild HR. Fyrirlesturinn hefst kl. 13:50-16:15 og verður haldinn í stofu 231a. Lesa meira
 

5.9.2005 : Dr. Guðmundur Sigurðsson og Dr. Ragnhildur Helgadóttir kennarar við lagadeild HR fá styrk úr rannsóknarsjóði Rannís

Þann 15. janúar s.l. var samþykkt úthlutun styrkja fyrir árið 2005 úr rannsóknarsjóði Rannís. Dr. Guðmundur Sigurðsson og Dr. Ragnhildur Helgadóttir fengu verkefnastyrk vegna fyrirhugaðrar rannsóknar á verkefninu: Almannatryggingar: Hlutverk og samspil við önnur bótaúrræði. Að rannsókninni standa einnig Tryggingastofnun ríkisins og sérfræðingar sem þar starfa. Rannsóknin hefst haustið 2005 og er áætlað að hún taki 3 ár. Lesa meira
 

5.9.2005 : Reglur um meistaranám við lagadeild HR

Lagadeild Háskólans í Reykjavík hefur samþykkt reglur um meistaranám sem hefst haustið 2005. Meistaranámið mun að verulegu leyti byggja á sjálfstæðri vinnu nemenda undir handleiðslu leiðbeinenda (rannsóknartengt meistaranám) og miklu vali um áherslur og námsleiðir. Frekari upplýsingar um meistaranámið er að finna á heimasíðu deildarinnar. Lesa meira
 

5.9.2005 : Lögmannafrumvarpið orðið að lögum

Föstudaginn 28. maí s.l. samþykkti Alþingi frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögum nr. 77/1996 um lögmenn. Með hinum nýju lögum er m.a. mælt svo fyrir að sá sem sækir um réttindi til að vera héraðsdómslögmaður skuli hafa lokið fullnaðarnámi í lögfræði með meistaraprófi eða embættisprófi frá lagadeild háskóla sem viðurkenndur sé af menntamálaráðuneytinu samkvæmt lögum um háskóla. Ljóst er að þeir sem ljúka grunn- og meistaranámi frá lagadeild HR hafa þar með lokið fullnaðarnámi í framangreindum skilningi og uppfylla því umrætt lagaskilyrði fyrir öflun lögmannsréttinda. Lesa meira
 

5.9.2005 : Narufumi Kadomatsu prófessor við Kyushu University í Japan flytur fyrirlestur í lagadeild HR um stjórnarskrá Japans 3. maí frá kl. 12:00-13:00

Narufumi Kadomatsu prófessor við Kyushu University í Japan flytur fyrirlestur í lagadeild HR um stjórnarskrá Japans en erindið ber yfirskriftina: ,,Legislative history and legitimacy argument on the Constitution of Japan”. Lagadeild Háskólans í Reykjavík efnir til hádegisfundar með Narufumi Kadomatsu prófessor við lagadeild Kyushu háskólans í Fukuoka í Japan þann 3. maí n.k. frá kl. 12:00-13:00. Fundurinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík í stofu 101. Lesa meira
 

5.9.2005 : Rannsóknastofnun í fjármálarétti sett á fót í Háskólanum í Reykjavík

Lagadeild Háskólans í Reykjavík hefur sett á fót rannsóknastofnun á sviði löggjafar um fjármálaþjónustu. Rannsóknastofnunin verður formlega opnuð í dag kl. 17 við hátíðlega athöfn í HR þar sem starfsemi hennar verður kynnt. Lesa meira
 

5.9.2005 : Mikil aðsókn á fundum með dr. Jan Schans Christensen prófessor.

Lagadeild Háskólans í Reykjavík, LOGOS lögmannsþjónusta og Samtök atvinnulífsins efndu til funda með dr. Jan Schans Christensen, prófessor við lagadeild Háskólans í Kaupmannahöfn þann 2. og 3. mars s.l. í Háskólanum í Reykjavík. Fyrirlestrarnir eru komnir á netið. Lesa meira
 

5.9.2005 : Rúmlega hundrað nemendur úr Háskólanum í Reykjavík í kynnisferð í Brussel

Um 110 manna hópur frá Háskólanum í Reykjavík er nú í vikulangri kynnisferð til Brussel. Annars vegar er um að ræða nemendur lagadeildar HR sem sitja námskeiðið Evrópuréttur undir stjórn Einars Páls Tamimi, lektors og forstöðumanns Evrópuréttarstofnunar HR, og hins vegar nemendur viðskiptadeildar HR úr námskeiðinu Ísland og Evrópusambandið sem Jón Ormur Halldórsson, dósent, kennir. Lesa meira
 

5.9.2005 : Fyrsta lögfræðiþing Lögréttu

Lögrétta félag laganema við Háskólann í Reykjavík hélt fyrsta lögfræðiþingið þann 9. október s.l. Félagið mun bjóða laganemum reglulega upp á fyrirlestra um áhugaverð lögfræðileg málefni . Fyrsti gestur lögfræðiþingsins var Prófessor Ármann Snævarr en hann hélt erindi um Hlutverk og gildi almennrar lögfræði. Fjöldi nemenda og gesta sótti þingið. Að erindi loknu færði Ármann félaginu að gjöf nokkrar af bókum sínum og vildi þar með leggja grunn að bókasafni Lögréttu. Lögrétta var stofnað 8. mars 2003. Lögrétta félag laganema við Háskólann í Reykjavík hélt fyrsta lögfræðiþingið þann 9. október s.l. Félagið mun bjóða laganemum reglulega upp á fyrirlestra um áhugaverð lögfræðileg málefni . Fyrsti gestur lögfræðiþingsins var Prófessor Ármann Snævarr en hann hélt erindi um Hlutverk og gildi almennrar lögfræði. Fjöldi nemenda og gesta sótti þingið. Að erindi loknu færði Ármann félaginu að gjöf nokkrar af bókum sínum og vildi þar með leggja grunn að bókasafni Lögréttu. Lögrétta var stofnað 8. mars 2003. Lesa meira
 

5.9.2005 : Franz Fischler opnar Miðstöð Evrópuupplýsinga (EDC)

Franz Fischler, æðsti maður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í fiskveiði- og landbúnaðarmálum opnaði formlega Miðstöð Evrópuupplýsinga (European Documentation Centre), EDC, í Háskólanum í Reykjavík sunnudaginn 10. ágúst. Hér má lesa viðtal Morgunblaðsins við Einar Pál Tamimi forstöðumann Evrópuréttarstofnunar HR. Lesa meira
 

5.9.2005 : Miðstöð Evrópuupplýsinga (EDC) opnuð í HR

Franz Fischler, æðsti maður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í fiskveiði- og landbúnaðarmálum opnar formlega Miðstöð Evrópuupplýsinga (European Documentation Centre), EDC, í Háskólanum í Reykjavík sunnudaginn 10. ágúst kl. 16:00. Lesa meira
 

5.9.2005 : Verðbréfamarkaðsréttur fyrsta lögfræðiritið á Íslandi um verðbréfaviðskipti og verðbréfamarkaði

Bókaútgáfan CODEX hefur í samvinnu við Fjármálaréttarstofnun HR og KB Banka gefið út bókina Verðbréfamarkaðsréttur. Um er að ræða fyrsta lögfræðiritið á Íslandi sem fjallar á heildstæðan hátt um þær reglur sem gilda um verðbréfaviðskipti og verðbréfamarkaði. Höfundar bókarinnar eru Jóhannes Sigurðsson, prófessor í lagadeild HR, og Þórólfur Jónsson, lögfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf KB banka og stundakennari við HR. Lesa meira
 

5.9.2005 : Markaðsmisnotkun og innherjaviðskipti ráðstefna 25. maí á vegum Rannsóknarstofnunar í fjármálarétti, Íslandsbanka hf. og Kauphallar Íslands hf.

Rannsóknarstofnun í fjármálarétti við Háskólann í Reykjavík, Íslandsbanki hf. og Kauphöll Íslands efna til ráðstefnu 25. maí n.k. frá kl. 13:00-17:15 í Háskólanum í Reykjavík um markaðsmisnotkun og innherjaviðskipti. Lesa meira
 

5.9.2005 : SBV kvarta til ESA vegna Íbúðalánasjóðs

Kvörtunin byggir á álitsgerð Rannsóknarstofnunar í fjármálarétti en álitið er fyrsta þjónustuverkefni nýstofnaðrar Rannsóknarstofnunar við Háskólann í Reykjavík. Lesa meira
 

8.8.2005 : Málskot í einkamálum ný bók eftir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómara

Út er komin hjá Bókaútgáfunni Codex bókin Málskot í einkamálum eftir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómara. Bókin er sú þriðja sem Jón Steinar gefur út en að auki hefur hann ritað fjölmargar tímaritsgreinar um lagatengd efni. Lesa meira
 

21.6.2005 : Peter Dyrberg nýr forstöðumaður Evrópuréttarstofnunar HR

Peter Dyrberg hefur tekið við starfi forstöðumanns Evrópuréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík. Dyrberg er í fremstu röð Evrópuréttarsérfræðinga og með einstaka reynslu á því sviði. Einnig hefur ný stjórn tekið til starfa. Lesa meira
 

2.6.2005 : Háskólinn í Reykjavík og Tryggingastofnun í samstarf um rannsóknir og kennslu á sviði almannatrygginga

Háskólinn í Reykjavík og Tryggingastofnun ríkisins skrifuðu þann 30. maí s.l. undir samstarfssamning með það að markmiði að efla rannsóknir og kennslu á sviði almannatryggingaréttar við Háskólann í Reykjavík. Lesa meira
 

24.5.2005 : Ráðstefna um dómaframkvæmd Evrópudómstólsins á sviði vörumerkjaréttar þann 10. júní n.k.

Ráðstefnan er haldin á vegum Evrópuréttarstofnununar Háskólans í Reykjavík. Á ráðstefnunni verður farið skipulega yfir dómaframkvæmd Evrópudómstólsins á sviði vörumerkjaréttar. Fjallað verður um atriði eins og hvort niðurstaðna í BABY DRY sé ennþá fordæmisgefandi? Lesa meira
 

7.4.2005 : Hádegisfundur um markaðssvik 11. apríl kl. 12:00-13:30

Fjármálaréttarstofnun HR og viðskiptaráðuneytið standa fyrir hádegisfundi mánudaginn 11. apríl frá kl. 12:00-13:00 á 3. hæð Háskólans í Reykjavík. Lesa meira
 

31.3.2005 : Tyrkland í ESB - morgunverðarfundur Evrópuréttarstofnunar 4. apríl kl. 8:30

Dr. Haluk Gunugur, einn helsti sérfræðingur Tyrkja í samskiptum við ESB talar á opnum morgunverðarfundi um framtíðarþróun í viðskiptum og lagaumhverfi Tyrklands. Allir velkomnir. Lesa meira
 

29.3.2005 : Kaupréttarsamningar við stjórnendur - ráðstefna 1. apríl n.k.

Föstudaginn 1. apríl kl. 14:00-17:00 mun lagadeild og viðskiptadeild HR í samvinnu við Félag lögfræðinga fjármálafyrirtækja og Kauphöll Íslands standa fyrir ráðstefnu um kaupréttarsamninga við stjórnendur og góða stjórnarhætti fyrirtækja . Ráðstefnan verður haldin í stofu 131a á 1. hæð Háskólans í Reykjavík. Lesa meira
 

21.3.2005 : Námskeið á sviði Evrópuréttar í dag og á morgun

Alastair Sutton lögmaður og sérfræðingur m.a. á sviði Evrópuréttar/EES réttar heldur námskeið fyrir nemendur lagadeildar HR í dag og á morgun. Lesa meira
 

17.3.2005 : Tímarit Lögréttu 2. tölublað komið út

í vikunni kom 2. tölublað Tímarits Lögréttu út. Þetta er ritrýnt fræðirit á sviði lögfræði, gefið út af Lögréttu, félagi laganema HR. Lesa meira
 

4.3.2005 : Lagadeild HR og Mannréttindastofnun H.Í. gera samstarfssamning um útgáfu fræðirits

Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og lagadeild Háskólans í Reykjavík hafa gert samstarfssamning um útgáfu fræðirits um Mannréttindasáttmála Evrópui. Lesa meira
 

Fleiri fréttir


Umsagnir laganema

Gardar-Vidir

Námið við lagadeild Háskólans í Reykjavík var bæði fjölbreytt og hagnýtt. Eftir að hafa stundað bæði skipti- og framhaldsnám erlendis get ég fullyrt að gæði bæði námsins og kennslunnar standast fyllilega alþjóðlegan samanburð.

Lesa meira
 

Allar greinar


Viðburðir

19.3.2009 : Heitar umræður - Fyrirlestraröð MSc Evrópufræðum

Staða Íslands í samfélagi þjóðanna, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Ólöf Nordal og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmenn. Lesa meira
 

23.1.2009 : Auðlindaréttarstofnun: The Future Climate Regime: Fundamental Issues of Fairness, Efficiency and Sustainable Development

Tilgangurinn með stjórnun loftlagsmála er að auðvelda og milda nauðsynlega aðlögun að loftlagsbreytingum. Mikilvæg þróun verður að eiga sér stað á alþjóðalögum og landsrétti ríkja svo þessum markmiðum verði náð. Bugge fjallar í þessu sambandi m.a. um hlutverk laga og þörfina á samstilltum aðgerðum. Hann víkur einnig að ýmsum lagalegum álitaefnum sem tengjast m.a. sanngjarnri skiptingu ábyrgðar, hagkvæmni markaðar með losunarheimildir og hvaða hlutverki lög gegna við að sætta sanngirnis- og hagkvæmnisjónarmið. Rætt verður um “íslenska ákvæðið” svonefnda í ljósi þeirra sjónarmiða sem Bugge reifar. Dr. Hans Christian Bugge er prófessor í umhverfisrétti við Oslóarháskóla. Hann hefur doktorsgráðu í skipulagsfræðum frá Université de Paris II og er dr. Juris frá Oslóarháskóla. Helstu kennslu- og rannsóknarsvið hans eru umhverfis- og auðlindaréttur. Hann stýrir rannsóknarhópi í auðlindarétti við Oslóarháskóla og er stjórnarformaður rannsóknarmiðstöðvar í þróunar- og umhverfisfræðum við skólann. Lesa meira
 

31.10.2008 : Samfélagsábyrgð fyrirtækja: Hið nýja Ísland?

EÞIKOS – Miðstöð Íslands um samfélagsábyrgð fyrirtækja stendur fyrir hádegisfundi miðvikudaginn 5. nóvember kl. 12:00-13:30 í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2. Lesa meira
 

9.5.2007 : Conference: The Human Rights of Persons with Disabilities

Conference organised by Reykjavík University and the Icelandic Human Rights Centre in cooperation with the Organisation of Disabled in Iceland and the National Federation for People with Learning Disabilities

Lesa meira
 

Fleiri viðburðir


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica