Algengar spurningar

Algengar spurningar

Munu þeir sem útskrifast frá lagadeild HR verða "viðskiptalögfræðingar" eða lögfræðingar?
Þeir sem ljúka BA námi í lögfræði við HR, þ.e. þriggja ára grunnnámi í lögfræði, verða lögfræðingar. Eftir grunnnámið gefst kostur á tveggja ára framhaldsnámi til meistaragráðu í lögfræði. Lagadeild HR mun hins vegar ekki útskrifa svonefnda viðskiptalögfræðinga. Skipulag laganámsins við HR var á sínum tíma lagt fyrir Menntamálaráðuneytið og leitað eftir staðfestingu þess á að námið teldist fullnægjandi laganám, bæði til BA-gráðu og meistaragráðu. Ráðuneytið staðfesti að svo væri.


Stenst laganám við HR samanburð við laganám við HÍ eða laganám á hinum Norðurlöndunum?
Námið stenst fyllilega samanburð við það besta sem þekkist í laganámi á Norðurlöndum enda var mikil vinna lögð í undirbúning námsins og skipulag. Skipulag grunnnámsins er að því leyti frábrugðið laganámi við HÍ að mun fleiri greinar eru kenndar í grunnámi við HR en HÍ. Í sumum greinum er kennt minna í grunnnámi við HR en HÍ en nemendum gefst kostur á að bæta við nám sitt í þeim greinum með valgreinum á lokaönn í grunnámi og  í meistaranámi.


Munu þeir sem ljúka meistaranámi við lagadeild HR uppfylla þau almennu menntunarskilyrði sem gerð eru til lögmanna?
Svarið við þessari spurningu er já. Sá sem lýkur grunn- og meistaranámi í lögum frá lagadeild Háskólans í Reykjavík (svonefndu fullnaðarnámi í lögfræði) uppfyllir þar með almenn menntunarskilyrði laga um lögmenn til að öðlast réttindi sem héraðsdómslögmaður.

Þess er rétt að geta að við skipulag náms við lagadeild HR var sérstök áhersla lögð á menntun verðandi lögmanna. Sést þess víða merki í skipulagi grunn- og meistaranámsins þ.e. í ákvörðun skyldu- og valgreina og þeim áherslum og aðferðum sem einkenna kennslu og nám við lagadeild HR.


Hvaða skilyrði þarf ég að uppfylla til að fá inngöngu inn í Háskólann í Reykjavík?
Umsækjandi um grunnnám við lagadeild Háskólans í Reykjavík skal hafa lokið stúdentsprófi eða jafngildu prófi samanber 19. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla. Í undantekningartilvikum er heimilt að innrita nemendur sem að mati inntökunefndar lagadeildar búa yfir jafngildum þroska og þekkingu og þeir nemendur sem lokið hafa stúdentsprófi eða jafngildu prófi.

Við val á umsækjanda er einkunn á stúdentsprófi eða jafngildu prófi höfð til hliðsjónar. Sérstaklega er litið til einkunna í íslensku, ensku, norrænu tungumáli og stærðfræði. Annars konar þekking og reynsla, svo sem úr atvinnulífinu, þátttaka í félagsstörfum, íþróttum, tónlistarnámi og öðru sem talið er að reynst geti umsækjanda vel í námi, getur einnig haft áhrif á mat á umsóknum. Umsækjendur skulu gera grein fyrir þeim atriðum sem þeir telja geta orðið umsókn sinni til framdráttar í sérstakri greinargerð sem er hluti umsóknar.


Af hverju lagadeild í HR?
Markmið lagadeildar HR er að veita stúdentum viðurkennda menntun á sviði lögfræði sem gerir þeim kleift að ná árangri bæði í frekara háskólanámi sem og í atvinnulífinu með samþættingu góðrar þekkingar á undirstöðugreinum fræðanna og vinnu raunhæfra verkefna. Námsframboð er í stöðugri þróun og er tekið mið af viðurkenndum erlendum háskólum og atvinnulífinu. Stefna skólans er að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica