Námskeið Auðlindaréttastofnunar

Í samræmi við markmið Auðlindaréttarstofnunar að veita fræðslu til nemenda HR  fer fram kennsla í auðlindarétti á meistarastigi við lagadeild HR.

Vor 2012

Námskeið í alþjóðlegum og  evrópskum orkurétti -International and European Energy Law


Learning outcomes: At the completion of the course the student should have acquired basic knowledge of the legal and institutional framework in the field of energy law in the international and European context and be able to identify and explain the main principles and legal issues related to generation, transmission and consumption of energy. 

Course description: The course is divided into four main parts.
First part: This part provides the background to the presentation of international law, European law and national law concerning energy. It introduces legal methodology, sources of law. Emphasis is placed on practical application of legislation and general principles of law and the interaction and mutual influences between international law, European law and domestic law. 

Second part: This part presents the main legal issues and principles governing the energy supply chain, i.e. generation, transmission and consumption. In relation to generation the lectures will focus on ownership issues, international production contracts, environmental concerns, renewable energy matters and legal issues related to emission trading. With respect to transmission, issues related to unbundling of energy utilities and third party access to the transmission system will be discussed as well as cross-border and security of supply. As concerns consumption, the lectures will mainly deal with topics related to market opening, public service obligations, consumer protection, energy efficiency and energy taxation. In all respects, the issues to be discussed will root either in international law (UN Law and Conventions, WTO Law, contractual law) or European Law (EU and EEA).

Third part.: This part presents Energy regulation. It focuses on energy-specific regulation, regulation by competition authorities, the role of courts and arbitration tribunals as well as international institutions in general. 

Fourth part:  This part deals with global energy relations. The global quest for energy resources will be discussed as well as Europe‘s focus on external relations with the EEA, Switzerland, South East Europe and Russia. Moreover, US Energy law will be introduced. Námskeiðið verður kennt aftur haustið 2013.

Umsjónarmaður er
Kristín Haraldsdóttir og kennari Catherine Banet.

Auðlindaréttur


Námsmarkmið: Markmið málstofunnar er að efla þekkingu nemenda á réttarreglum sem gilda um auðlindir á landi, í jörðu og í sjó og að nemendur öðlist færni í að leysa úr lagalegum álitaefnum sem einkum tengjast eignarétti, umhverfisrétti og reglum um auðlindastjórnun.

Lýsing: Málstofan skiptist í þrjá megin hluta. Fyrsti hluti er almennur inngangur þar sem fjallað er um viðfangsefni auðlindaréttar og forræði ríkisins yfir auðlindum að þjóðarétti. Í öðrum hluta er fjallað um auðlindir á landi og í jörðu með sérstakri áherslu á orkulindir. Er í því sambandi horft á eignaréttarlega stöðu auðlindanna og þær reglur sem gilda um nýtingu þeirra.  Snertir umfjöllunin m.a. auðlindalög nr. 57/1998, lög um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis nr. 13/2001, vatnalög nr. 15/1923, raforkulög nr. 65/2003, löggjöf um mat á umhverfisáhrifum og náttúruverndarlög nr. 44/1999. Í þriðja hluta málstofunnar  er svo fjallað um lifandi auðlindir sjávar. Fiskveiðistjórnun og helstu reglur íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins eru megin viðfangsefni þessa hluta. Nær umfjöllunin m.a. til lagalegra álitaefna sem upp geta komið við ákvörðun heildarafla og úthlutun veiðiheimilda, eignaréttarlega stöðu veiðiheimilda og önnur tengd álitaefni.  Þá verður veitt innsýn í alþjóðlegt lagaumhverfi á þessu sviði.

Kennari: Kristín Haraldsdóttir

L-844-ORKA Málstofa: Orkuréttur – lagaumhverfi orkumarkaðarins  

Námsmarkmið: Markmið málstofunnar er að nemendur fái heildaryfirsýn yfir lagaumhverfi orkumarkaðarins og kynnist samningagerð við orkusölu og geti unnið að gerð slíkra samninga. 

Lýsing: Í málstofunni verður lögð höfuðáhersla á raforkumarkaðinn. Á síðustu árum hefur átt sér stað endurskipulagning á lagaumhverfi raforkumarkaðarins á Íslandi þar sem innleiddar hafa verið tilskipanir ESB sem eru hluti EES-samningsins. Íslenskur raforkumarkaður er um margt sérstakur og má í því sambandi helst nefna smæð hans og einangrun og hversu stór hluti orkusölu er til stóriðju. Í námskeiðinu verður farið yfir EES-rétt á þessu sviði og hvernig reglur hans hafa verið innleiddar í íslenskan rétt og beitingu samkeppnisreglna á þessu sviði. Þá verður fjallað um helstu stefnur og strauma í rétti ESB sem líklegt er að áhrif hafi hér á landi. Lögð verður sérstök áhersla á að fara yfir samninga um tengingu við raforkukerfið og raforkusölusamninga og m.a. skoðaðir samningar um orkusölu til stóriðju.

Kennari:
Kristín Haraldsdóttir

Málstofan Auðlindir og stjórnsýsla – Frá hugmynd til framkvæmdar tengir stjórnsýslu- og auðlindarétt. Markmið málstofunnar er að nemendur kynnist ferli, stjórnvaldsákvörðunum, og öðrum afskiptum stjórnvalda af framkvæmdum til auðlindanýtingar. Áður en framkvæmdaraðili getur hafið framkvæmdir til auðlindanýtingar þarf hann afla ýmissa leyfa, umsagna og annars konar samþykkis stjórnvalda. Mat á umhverfisáhrifum þarf að fara fram, huga þarf að skipulagsmálum og veita þarf framkvæmdaleyfi, svo dæmi séu tekin. Til að fá yfirsýn yfir reglur þar að lútandi er tiltekinni framkvæmd fylgt í gegnum stjórnsýslukerfið.  Námskeiðið verður kennt vorið 2013.

Um námskeiðið sér  Elín B. Smáradótitr lögfræðingur

Lögð er áhersla á að fá gestafyrirlesara með sérþekkingu á einstökum sviðum.

Í kjölfarið verða önnur sértæk námskeið á sviði auðlindaréttar.  Í ljósi þeirrar þróunar sem á sér stað að því er varðar nýtingu auðlinda má til dæmis gera ráð fyrir að innan fárra ára verði boðið upp á olíurétt sem sérstaka kjörgrein eða málstofu, í meistaranámi lagadeildar HR.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica