Doktorsnám (PhD)

Lagadeild HR hefur að undangengu gæðamati erlendrar sérfræðinganefndar fengið heimild Menntamálaráðuneytisins  til að bjóða doktorsnám í lögum (PhD).  Við lagadeild HR starfa nú þrír doktorsmenntaðir kennarar sem uppfylla hæfiskröfur til að starfa sem aðalleiðbeinendur í doktorsnámi.

Hægt er að sækja um doktorsnám  hér

Lengd náms – kennsla með námi

Doktorsnám er fullt nám í þrjú ár og svarar til 180 ECTS eininga.  Gert er ráð fyrir því að námstíminn vari í fjögur ár ef nemandi sinnir kennslu eða öðrum störfum með náminu. Doktorsnemi sem velur að vinna hjá HR með námi stendur til boða 25% starf sem stundakennari/aðstoðarmaður á ári.   Doktorsnemi í 25% starfi kennir 2 námskeið á 4 árum, eða sem svarar 1/2 námskeiði á ári. Doktorsnemi sinnir að öðru leyti störfum aðstoðarmanns, s.s. aðstoð við yfirferð prófa, umsjón með námsverkefnum eða rannsóknaraðstoð hjá leiðbeinanda í einn mánuð á ári.  Verkefni skulu vera skýrt skilgreind og tengjast  nema.        

Námskeið

Lagadeild Háskólans í Reykjavík býður ekki sérstaka námskeiðalínu fyrir doktorsnema.  Þess í stað verða námskeið og rannsóknarmálstofur skipulögð ad hoc, eða í samstarfi við aðra háskóla og rannsóknarnetverk.  Leiðbeinandi og doktorsnemi skipuleggja saman einstaklingsbundna námsáætlun sem er til þess fallin að auka hæfni og þekkingu doktorsnemans  til að vinna að rannsóknum og kennslu á sínu sérsviði.

Skólagjöld                                                                                                     

Skólagjöld í HR eru ákveðin árlega. Ákveðið var að doktorsnemar sem hófu nám árin 2010 og 2011 greiddu skólagjöld sambærileg skólagjöldum í ML námi í eina önn.

Starfsstöð                                          

Doktorsnemum er skylt að stunda rannsóknir sínar við HR og að vera búsettir í nágrenni skólans í 18 mánuði af námstímanum.  Doktorsnemi skal dvelja við erlenda háskólastofnun í allt að 6 mánuði.                   

Hægt er að sækja um doktorsnám  hér


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica