DOKTORSNÁM VIÐ LAGADEILD HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK
Með doktorsnámi við lagadeild Háskólans í Reykjavík er stefnt að því að þjálfa doktorsnema til rannsóknar- og kennslustarfa og annarra starfa sem krefjast mikillar vísindalegrar þjálfunar og þekkingar. Náminu er ætlað að dýpka fræðilega og aðferðafræðilega þekkingu doktorsnema í því skyni að gera þá hæfa til að vinna sjálfstætt og ígrundað á fræðasviðinu. Til að uppfylla kröfur til að öðlast doktorsgráðu frá lagadeild Háskólans í Reykjavík skal doktorsnemi, undir leiðsögn doktorsmenntaðs leiðbeinanda, hafa unnið vísindalegar rannsóknir sem fela í sér sjálfstætt framlag til þekkingarsköpunar á sviði lögfræði. Doktorsgráðu skal því aðeins veita að doktorsnemi hafi unnið sjálfstæðar frumlegar rannsóknir sem hafi nægjanlegt nýnæmi og vísindalegt gildi og séu af nægu umfangi til þess að verðskulda gráðuna.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið meistaranámi í lögfræði eða skyldum greinum og hafa sýnt afburðaárangur í námi og/eða starfi og vera líklegir til að geta tekið frumkvæði í þekkingarsköpun á sviði vísinda eða atvinnulífs.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi til skrifstofu lagadeildar. Með umsókn skulu fylgja staðfest afrit af prófskírteinum, feril- og ritaskrá ásamt drögum að rannsóknaráætlun. Umsækjandi skal tilgreina sérstaklega óskir sínar um leiðbeinanda úr röðum kennara í fastri stöðu við lagadeild Háskólans í Reykjavík og skal umsókn og rannsóknaráætlun samþykkt af honum.
Boðið er upp á doktorsnám á eftirfarandi réttarsviðum:
Stjórnskipunarréttur og stjórnskipunarsaga, samanburðarstjórnskipun og almannatryggingaréttur. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Helgadóttir prófessor (ragnhildur@ru.is)
Skaðabótaréttur, vátryggingaréttur og sjóréttur. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Sigurðsson prófessor og deildarforseti (gudmundur@hr.is)
Einnig veitir skrifstofustjóri lagadeildar Jóna K. Kristinsdóttir frekari upplýsingar í síma 599-6407, netfang: jonak@ru.is.

