Dvöl okkar í Uppsala var framar okkar bestu hugsanlegu vonum. Að kynnast annarri hlið lögfræðinnar og öðruvísi kennsluháttum, auk þess að kynnast öðrum erlendum nemendum með ólíkan bakgrunn var frábær og gagnleg reynsla. Við mælum hiklaust með skiptinámi.
Unnur Lilja Hermannsdóttir og
Tómas Magnús Þórhallsson meistaranemar í lögfræði.
Skiptinám við lagadeild HR - hluti náms við erlenda samstarfsháskóla.
Lagadeild HR er í samstarfi við fjölda erlendra háskóla meðal annars í Japan, Austurríki, Hollandi, Írlandi,Suður-Afríku, Rússlandi, Ítalíu, Spáni, Tyrklandi, Kanada og á Norðurlöndum. Nemendum stendur til boða að ljúka 60 ECTS í meistaranámi, við erlenda háskóla, á grundvelli nemendaskiptasamninga eða á öðrum forsendum og þá að fengnu samþykki lagadeildar. Vel skipulagt laganám við erlenda háskóla getur falið í sér mikinn virðisauka í menntun og reynslu og opnað nemendum nýja sýn og möguleika á námi og starfi.
Meistaranám
Deildin er með aðild að NORDPLUS sem er norræn hliðstæða ERASMUS-áætlunarinnar. Alls geta 13-18 nemendur við deildina sótt nám við norræna háskóla á vegum NORDPLUS. Lagadeild er einnig með samninga við Kyushu University Japan, Universiteit Leiden, University of Ottawa, Vilinius University, University of Gdansk, University of Johannesburg, Bucerius Law School, China University of Political Science and Law, University of Panthéon-Assas (Paris II) og fleiri.
Allar frekari upplýsingar um erlend stúdentaskipti veitir Guðlaug M. Jakobsdóttir á alþjóðasviði, netfang gudlaugm@ru.is
Heimasíða alþjóðasviðs.

