Málflutningskeppni Lögréttu
Málflutningskeppni Lögréttu fór fram fimmtudaginn 9. febrúar, kl. 17:00 í dómsal lagadeildar HR.
Málflutningsmaður ársins 2012 var kjörinn Berta Gunnarsdóttir nemandi á 3. ári sem hér hampar verðlaunabikar.
Evrópuréttur er eitt af kjarnafögum lagadeildar Háskólans í Reykjavík og í skólanum er starfrækt Evrópuréttarstofnun HR. Á hverju ári fara nemendur í Evrópurétti í námsferð til Brussel,þar sem heimsóttar eru stofnanir Evrópusambandsins, EFTA, Eftirlitsstofnun EFTA og fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu
Hér má sjá ferðasögu hópsins 2010 skráða af Völu Sigrúnu Valþórsdóttur laganema.
Laganemar við HR vinna til verðlauna í málflutningskeppnum
Lið lagadeildar Háskólans í Reykjavík undirbýr sig um þessar mundir af kappi undir þátttöku í stærstu málflutningskeppni heims. Hún heitir Willem C. Vis International Commercial Arbitration Moot. Liðið heldur svo utan í apríl til að taka þátt í aðalkeppninni sem haldn verður í Vínarborg. Nemendum í meistaranámi stendur til boða að taka þátt í The Philip C. Jessup International Law Moot annað hvert ár á móti Willem C. Vis.
Lið lagadeildar Háskólans í Reykjavík hafnaði í 5. til 8. sæti í Willem C. Vis málflutningskeppninni sem haldin var í Vínarborg vorið 2009. Alls tóku 233 háskólar alls staðar að úr heiminum þátt í keppninni, og er hún ein stærsta málflutningskeppni sem haldin er á alþjóðavettvangi. Keppnin snýst um að laganemendur útbúa sóknar- og varnarskjöl í tilbúnu ágreiningsefni, sem flutt er fyrir alþjóðlegum gerðardómi.
Auk fyrrnefnds árangurs fékk lið Háskólans í Reykjavík heiðursverðlaun („honourable mention“) fyrir varnarskjal liðsins og einn liðsmanna skólans, Hjördís Birna Hjartardóttir, fékk sömuleiðis heiðursverðlaun fyrir góða frammistöðu í málflutningi. Þess má geta að einungis um 10% þátttakenda í keppninni hlotnast slíkur heiður.
Frábært félagslíf - Lögrétta félag laganema

