Umhverfisáhrif - hvað er það?
Auðlindaréttarstofnun Háskólans í Reykjavík og tækni- og verkfræðideild HR standa fyrir hádegisfundi þriðjudaginn 2. febrúar nk. kl. 12:00-13:30 í Betelgás (stofa V1.02) í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1 (Nauthólsvík).
Fjallað verður um hugtakið „umhverfisáhrif“ í lögum um mat á umhverfisáhrifum í ljósi nýlegs dóms Hæstaréttar í máli Vegagerðarinnar gegn Náttúruverndarsamtökum Íslands o.fl. sem laut að umhverfisáhrifum vegna lagningar vegar um Teigsskóg. Þá verður leitast við að svara því hvort og hvaða áhrif dómurinn kann að hafa á framkvæmd mats á umhverfisáhrifum.
Framsögur flytja:Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt við tækni- og verkfræðideild HR
Katrín Theodórsdóttir hdl.
Rut Kristinsdóttir sviðsstjóri umhverfissviðs hjá Skipulagsstofnun
Fundarstjóri: Kristín Haraldsdóttir, forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar HR.
Að framsögum loknum verða almennar umræður.
Aðgangur ókeypis og öllum opinn.

