Forseta Írlands afhent íslenskt fræðirit
Dr. Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við lagadeild HR og dr. Gerard Quinn afhentu á dögunum forseta Írlands, Mary McAleese, eintak af bók sinni The UN Convention on the Rights of Persons with Disabilities: European and Scandinavian Perspectives, en sú bók kom út í vor og er fyrsta alþjóðlega fræðiritið um nýjan sáttmála SÞ um réttindi fólks með fatlanir.
Oddný og Quinn afhentu forsetanum bókina í móttöku sem haldin var þeim til heiðurs. Viðstaddir voru enn fremur dr. James J. Browne, rektor National University of Ireland, Galway og Dr. Maurice Manning formaður írsku mannréttindaskrifstofunnar.
Í sömu heimsókn hélt Oddný opinberan fyrirlestur við NUI Galway.



